Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
Living on a Dime
27.2.2012 | 21:50
Og fyrir þau okkar sem vilja spara aurinn án þess að henda krónunni bendi ég á ´Living on a Dime´síðuna. Fréttabréfin fjalla um allt frá ódýrum uppskriftum til aðferða til að skera niður húshaldskostnað hvar sem er innan heimilisins.
Þau hafa núna t.d. free giveaway á bókum sem þau hafa gert, fyrstur kemur fyrstur fær - tilboðið gildir í dag og á morgun.
Living on a Dime
How to save money and get out of dept
Mæli með þessu, fréttabréfið ókeypis og yfirleitt fullt af ágætum hugmyndum. Sumar hverjar eru reyndar óframkvæmanlegar hérna vegna annars menningarsvæðis en fróðlegt að vita hvernig þau leysa málin.
Málfrelsi í nýrri stjórnarskrá?
10.2.2012 | 07:56
Það þykir mér merkilegt hvernig mál- og tjáningarfrelsið virðist túlkað. Þegar Snorri sem er vissulega kristinn einstaklingur (og íbúi í kristnu samfélagi) birtir Biblíutexta í sínum frítíma við að verja málstað sinn og lífsgildi - hvernig í ósköpunum dettur fólki í hug að kalla það hatursáróður??? Þetta getur því ekki snúist um Snorra heldur um Biblíuna sjálfa. Jafnvel þótt við sleppum Guði í umræðunni, hvernig komast stjórnvöld að þeirri niðurstöðu að Biblían, sem er grundvallarrit allra mannréttinda (Guð skapaði alla menn í sinni mynd), sé hatursáróður???
Þessum ofsóknum verður að linna. Við verðum að geta tjáð okkur um hlutina, talað sama og komist að niðurstöðu. Þetta er grunnur þess samfélags sem við lifum í og grundvöllur nýrrar stjórnarskrár, að við hefjum einmitt HVORKI galdrabrennur NÉ kristinnabrennur heldur ræðum um hlutina. Við rekum ekki fólk fyrir að tala heldur fögnum því.
Trúnaður ríkir um mál kennara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
skjaldborg um laun stjórnmálamanna
10.2.2012 | 07:39
Laun forsætisráðherra hækkuðu um 217 þúsund | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Business as usual (NTC og WC)?
4.2.2012 | 08:18
Að virkja kraft kvenna inna sinna raða? Títtnefndur Egill rassandlit var sjálfsagt gæfuspor margra þessara kvenna, enda þótt þær hafi losað sig við hann umsvifalaust þegar brestirnir í leikmynd Gilzeneggers þóttu ekki lengur kjútt og mainstream.
En það sem mér finnst þó bíta hausinn af skömminni er talfæri þeirra Hafdísar (WC) og Svövu (NTC) og co þegar þær veita ja.is verðlaun án þess að blanda sér neitt í mál sem lúta að rekstrinum. Bara svo lengi sem konur eru við stjórnvölinn og meika-ða þá skiptir engu máli hvaða leiðir eru farnar til þess né hvaða ímynd þær gefa af sér við það. Jafnvel þótt þær geri kynsystur sínar atvinnulausar í nafni hagræðingar og gróðaaukningar.
Mætti kannski nefna það í framhjáhlaupi að þær auglýstu á dögunum nýtt námskeið um sölutækni og markaðssetningu. Það hét gætirðu selt ömmu þína. Kannski þetta komist einhverntíman í sögubækur sem dæmi um afleiðingar ósvífins kapítalisma og þverrandi viðskiptasiðgæðis.
Tilkynnti úrsögn úr félaginu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kynningarátaksskýrslan?
7.1.2012 | 16:59
Vel gert hjá Hveragerðisbæ enda mjög mikilvægt að einhver taki einarða afstöðu til þessa mikla hita- og álitamáls. Veit einhver hvar hægt er að nálgast þessa skýrslu? Gúglaði (eh.. https://startingpage.com - aði) upp erfðabreytt.net en fann í fljótu bragði ekkertum hana.
Málið átti að kynna skilyrðislaust | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Yndisleg samvinna
21.12.2011 | 17:53
Dásamlegt dæmi um það hvernig stjórnvöld geta átt í vinsamlegum og uppbyggilegum samskiptum við fjölmiðlana. Eða með öðrum orðum hvernig fjölmiðlarnir starfa sem handbendi bankanna, hinna raunverulegu stjórnvalda á Íslandi. Athyglisvert að lesa greinina með því augnamiði hvernig pressan ól á raunverulegri" þjófhræðslu sem nýtist hverjum? Auðmönnunum sem stýra bönkunum.
Legg til að menn skoði reglulega yfirhalninguna sem Lára Hanna sýnir af Bjartmari og Einari Má taka Ingva Hrafn á beinið. Ingvi fær alla þá skömm í hattinn sem hver einasti fjölmiðill átti skilið fyrir einhliða og gagnrýnislausa fréttamennsku. Þetta þarf að skoða sérstaklega vel núna þegar skilanefndirnar krefjast samúðar í ljósi þeirra vandræða sem bankarnir lentu í."
Búið að tæma sum útibú af seðlum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 17:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eineltissamtökin Vantrú?
5.12.2011 | 07:39
Heilagt stríð Vantrúar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Friðhelgi einkalífsins
13.11.2011 | 14:39
Hef stundum velt fyrir mér hvort þetta sé af sveitabragnum á öllu en hvar ég hef búið erlendis eru privacy issues mjög mikilvægar, fólk hugsar sig oft um áður en það setur nafnið sitt við einhverjar upplýsingar - einmitt af því að það er svo auðvelt að misnota þær. Í Þýskalandi var Stasi og einhverju fyrr Gestapo, KGB, VSB, CIA, Mossad og hvað-þeir-nú-hétu-allir. Og við ...? Sérsveitina hans Björns Bjarna?
Kannski Birgitta hafi einmitt fengið nasasjón af því hvernig vilji stjórnvalda getur hneigst til rannsókna á einstaklingum og hvernig andvaraleysi þegnanna er þeim beinlínis hjálplegt. Fyrst við fáum að fylgjast með þessari sakleysissviftingu ættum við að reyna að læra eitthvað í leiðinni.
Hvet alla til að skoða leitarvélar á borð við https://startingpage.com/
Öruggast að senda sendibréf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er dr. Saxi á Landsanum
23.10.2011 | 18:55
Starfsfólk beitt ofbeldi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bleksull?
1.7.2011 | 13:58
Neitað um starf vegna húðflúrs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |