Færsluflokkur: Trúmál og siðferði

lífrænn hernaður

Ég er einmitt áhugamaður um garðyrkju og enda þótt lítil spretta hafi nú verið í salatinu þetta árið vegna slakrar tíðar þá höfum við fjölskyldan gegnum tíðina barist við snigla sem vilja gæða sér á grænmetinu okkar.  Á undan okkur.  Og oft meira en við kærum okkur um.  Hvernig væri að það væri hægt að kaupa pardussnigla í gróðurstöðvum og jafnvel í stað eiturs eins og RoundUp og annars viðlíka óþverra.  Slagorðin hljóma mér fyrir eyrum: Lífrænn hernaður - vinnum með náttúrunni - ...?
mbl.is Pardussnigillinn er vinur okkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

wtf

Af hverju í ósköpunum er einhver að smygla 355 kg af kopar úr landi? Og hvar stal hann þessu? Og eins og krakkarnir segja: wtf gerir maður við 180 kg af muldu síuefni úr hvarfakútum??? Er þetta endurnýtingarmarkaðurinn?
mbl.is Ætlaði úr landi með 355 kg af kopar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FACEBOOK og árásirnar

 

... ekki sé vitað til þess að upplýsingum um notendur Facebook hafi verið stofnað í hættu.

 

 

UPPLÝSINGUM Í FACEBOOK ER STOFNAÐ Í HÆTTU.

-myndirnar ykkar eru seldar í ágóðaskyni,

-sjórnvöldum eru gefnar upp þær upplýsingar sem þær þurfa þá og þá stundina,

-auglýsingar eru seldar sem byggðar eru upp í kringum upplýsingarnar sem þið látið í té og flokka ykkur í markhóp - og birtast bara ykkar markhópi  

 

FACEBOOK verður ekki fyrir árás -

FACEBOOK er árás sem notendur hafa boðið inn á sitt einkalíf


mbl.is Tölvuþrjótar réðust á Facebook
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nefndir vita alltaf betur en þjóðin

Og sér í lagi nefndir sem styðja ríkjandi (ó)stjórn. Það sem nefndin ætti þó að vita er að hér á landi hefur ríkt um langt skeið mikill óstöðugleiki sem á sér m.a. djúpar rætur í pólitískri vinavæðingu. Að auðlindaákvæðið og aðkoma almennings að ákvörðunum skuli orsaka hræringar í óstjórninni ætti því ekki að koma neinum á óvart. En sjáum hvað setur, dag skal að kveldi lofa  
mbl.is Flókin ákvæði í stjórnarskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En bankarnir græða!?

Rakst á þetta einfalda skýringamyndband og þætti nú gott ef áhuga- og atvinnumenn létu ljós sitt skína: er þetta staðan eins og hún er í raun eða tómt kjaftæði?


mbl.is 47,8% hafa miklar eða frekar miklar fjárhagsáhyggjur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að hvetja til lögbrots?

Nú er það raunin að auðvelt er að sjá vanhæfni annarra (minni á Biblísku umræðuna um bjálkann og flísina) og Hjálmar horfir á þessa umræðu út frá sínu kynlöngunarvali.  Núna er hann t.d. búinn að úttala sig um þetta mál og þar með væntanlega að útiloka sig frá kennarstarfi í nútíð og framtíð.  En sannleikurinn er að kennarar eru líka fólk sem lifir í sama samfélagi og Hjálmar og hefur rétt á sama tjáningar- og málfrelsi í sínum frítíma.  Og þar styð ég Snorra hjartanlega.  Hann hefur nefninlega nákvæmlega sama rétt á því að tala og tjá sig um sínar skoðanir og ég ... og Hjálmar.

Kannski verði líka einhverntíman hægt að ræða um málefni samkynhneigðra án þess að nota orðið ´fordómar´ eða ´sleggjudómar´.  Því einhverntíman hlýtur að vera hægt að kynna sér málið ofan í kjölinn og mynda sér út frá því skoðun - sem er þá skoðun en ekki for-dómur (að dæma e-ð fyrirfram).  Þetta hefur Snorri gert og hefur lögbundinn rétt til að úttala sig um sína skoðun.  Að krefjast annars er lögbrot.


mbl.is Ef ég lendi í helvíti rotna ég þar glaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki maðurinn óttalegur kjáni?

Í sjálfu sér gott og blessað að láta reyna á lagasetningar stjórnvalda og sjálfur tek ég ofan fyrir aðgerðasinnum per se en maðurinn hefur einfaldlega rangt fyrir sér.  Kannski vegna kannabisneyslu.  Kannabis veldur eins og mýmörg önnur efni breytingu á skynjun (víma) og þessi breyting breytir fólki til langframa við áframhaldandi neyslu.  Hún gerir fólk líka t.d. van- eða óhæft til aksturs ökutækja og það eitt og sér getur leitt til þess að það valdi öðrum skaða, hættu eða tjóni.  Breyting á félagsleg hegðun og atferlismynstri getur kannski líka talist til tilfinningalegs skaða, hættu eða tjóns fyrir fjölskyldur neytenda og aðra aðstandendur.  Upplýst ákvörðun spilar þar enga rullu frekar en hjá neytendum áfengis eða annara vímugjafa.  Að öðru leiti bendi ég á SÁÁ eða NA hópa
mbl.is Reykti kannabis í alþingisgarðinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjórða eða langfyrsta valdið?

Mikið afskaplega er ég ánægður með þessa opinberun á því valdi fjölmiðla sem er komin upp.  Fjölmiðlar hafa verið kallaðir fjórða valdið, næst á eftir ríkisvaldinu þrískipta - hinsvegar hafa þessi valdahlutföll raskast mikið frá tímum nafngiftarinnar.  Murdoch stærði sig af því að hafa komið ríkisstjórnum á tindinn og niður aftur.  365 miðlar vilja höggvar í svipaðan knérunn.  Nú er mér því miður fullljóst að það er ekki bara 365 sem dreymir valdadrauma um Þóru og ESB.  Mér þótti athyglisverð umræðan á DV um hvernig LÍÚ réð Davíð Oddsson sægreifunum til aðstoðar, Bingi ræður einhverjum vefmiðlunum og Viðskiptablaðið ... Fjölmiðlanefnd segir Myllusetur eiga það og fyrir Myllusetri eru þar skráðir Pétur Árni Jónsson og Sveinn B. Jónsson (bræður?).  

Annars meira um eignarhald og -tengsl fjölmiðla í fyrirlestri Þorbjarnar Broddasonar

mbl.is Yfirgáfu kappræður í Hörpu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fégirndin er rót all þess sem illt er.

Fyrst Mbl. kann ekki Biblíuna sína er sjálfsagt að leiðrétta þá 1Tim 6.10.  En eins og landsmenn fengu að kenna á og eru enn að súpa seyðið af, þá var undirrót kreppunnar vissulega fégirnd.  Og siðleysi.

Gleðilegan annan í Hvítasunnu


mbl.is Peningar ekki rót alls ills
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úrsögnin skapar fjölmörg óleyst vandamál

Fyrir þá sem ekki vita þjónustar Skólaskrifststofa Suðurlands skólana frá Þorlákshöfn til Víkur (held ég fari rétt með svæðið).  Þeir bjóða skólunum uppá ýmsa kennslufræðilega þjónust (þ.e. lestrarskimanir oþh.), sérkennslu (lestrarhjálp, heyrnar- og talmeinafræði ofl.) og sálfræðiþjónustu.  Þar að auki hafa þeir öflugt teymi ART-þjálfara (agression replacement training) sem hefur nýtst mjög vel börnum og unglingum sem ella hafa mjög óæskileg áhrif á bekkjarandann.  
Nema eins og kemur fram í greininni hér hefur Árborg greitt um 48% og í raun veitt skrifstofunni starfsgrundvöll.  Nú er fræðslunefnd Árborgar búin að segja sig úr þessu samstarfi sveitarfélaga á Suðurlandi og svipti Skólaskrifstofuna þar með sínum starfsgrundvelli.  Þetta hefur mjög mikil og ófyrirsjáanleg áhrif á allt það svæði sem skrifstofan hefur hingað til þjónustað og óhætt er að segja að skólastarf á Suðurlandi er í miklu uppnámi.  Ég veit af nokkrum kynningarfundum á þessari nýju leið innan Árborgar þar sem mikill kurr var í fólki og flestir ósáttir við ákvörðunina.  
Þetta er ekki ákvörðun tekin á faglegum grunni þar sem skólastarf er haft í forgrunni heldur vanhugsuð sparnaðarráðstöfun sem ber að harma.

Elva Dögg virtist vera sú eina innan raða sjálfstæðisflokksins sem bar gæfu til að sjá hversu mikil afturför og aðför þetta væri að skólastarfi á svæðinu.  Spurningin hvernig þeir hafi gert hana góða.
mbl.is Óbreyttur meirihluti í Árborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband