Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
NEEEEEEEI !!!
24.9.2010 | 07:01
Facebook-vefurinn bilaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Af hverju fjölgar leigusamningum?
15.9.2010 | 11:37
Leigusamningum fjölgaði um 48% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vox populi um trúnaðarbrest.
22.8.2010 | 10:46
Hér snýst því málið EKKI um hvort barnavernd sé nauðsynleg eða hvort misnotkun barna sé eitthvað annað en hræðilegur verknaður. Málið snýst um það hvort prestar geti haldið trausti þeirra sem leita til þeirra eða eins og sr. Bjarni orðar það: hvort hafi orðið trúnaðarbrestur milli presta og þjóðar. Hvort færi maður þá frekar til sr. Bjarna eða sr. Geirs?
Nú þarf Geir Waage að hætta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Icesave og ESB er tvennt ólíkt - og þó!
11.8.2010 | 07:54
Og nú hlýt ég að spyrja mig hvernig nokkrum detti í hug að stækkunar-stjórinn sjálfum búi yfir hlutlausum upplýsingum. Líklega hefur Göbbels líka fundist hann búa yfir hlutlausum upplýsingum um innlimum Tékkóslóvakíu heitinnar. Við skulum kalla þetta áróður, OK? Sem ESB leggur fúlgur fjár í. Hvaða sjóði hafa andstæðingar ESB að leita í svo fyrrnefnds hlutleysis og að auki jafnræðis sé gætt?
Gætu tekið Noreg á þetta" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
dragg, um drögg, frá dröggi, til dröggs
6.8.2010 | 11:44
Nú er ekki lengur þorandi að hafa skoðun á Hinsegin dögum svo ég held skoðun minni fyrir mig á hópi sem á ekkert sameiginlegt nema þá kynhvöt sem beinist að eigin kyni. Hinsvegar er þessi borgarstjóri merkilegt kerti sem minnir mig á söguna um fjöðrina sem var þar að finna sem vindar blésu henni. Gnarr er einkar viðfeldinn kall sem hefur daðrað við hina ýmsu þjóðfélagshópa, kallar sig trúð á góðum degi, titil sem virðist kannski ná kjarna þess sem hann hefur fram að færa. Í öllu falli er ég óskaplega feginn að hann sé ekki við stjórnvölinn í mínu bæjarfélagi, nógu erfitt er þar samt.
En fyrir mig fávísan, er dragg bara þegar karlmenn íklæðast kvenmannsfötum? Ekki þegar konur íklæðast karlmannsfötum?
Óvæntur gestur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Frábært fjör
3.8.2010 | 12:00
Frábær stemmning í Stykkishólmi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Drápa: „Þennan dag var þjóðin dæmd í hlekki ...“
23.7.2010 | 13:21
Rakst á þetta myndband einhverstaðar á blogginu í gær og finnst það fantafínt. Flottur Magnús Guðmundsson sem ætti að vera einhverjum þekktur sem söngvarinn í Þeysurum kemur sterkur inn með þessa drápu.
Viðlagið er:
Þennan dag var þjóðin dæmd í hlekki
og komandi kynslóðir fengu þennan arf.
Á meðan sekir menn um götur frjálsir ganga
munu ófæddu börnin borga það sem þarf
Staðalmyndir eða stuð?
16.7.2010 | 09:28
Hérna er náttúrulega skólasamfélaginu í heild stórkostlegur vandi á höndum. Annarsvegar höfum við reglugerðir og ákvarðanir, lög og framfarasinnaðar, stefnumarkandi ályktanir
- og hinsvegar höfum við mannlegt eðli og langanir.
Er ekki hlutverk skólans að gera börn hæf til þátttöku í því þjóðfélagi sem þau búa í? Skólinn er miklu meira en Písakannanir og jafnvel þótt Kristín Ást. segi helstu áhugamál stráka og stelpna hégóma komumst við ekki framhjá því að ef umræðunni er ekki stýrt leitar hún sinna eigin leiða. Þegar skólinn er farinn að vinna gegn mannlegu eðli losnar hann úr tengslum við nemendurna - úr tenglsum við þá staðreynd að þeir eru EKKI kynlausir heldur hafa langanir, væntingar og þrár UTAN skólanámskrár.
Skóli er miklu meira en útungunarstöð fyrir tæknigeirann, hann verður að bjóða uppá snertiflöt við raunveruleikann, þann raunveruleika sem börnin okkar hrærast í. Kennarar verða að geta nálgast nemendur sína á þeim stað sem þeir eru á, unnið traust þeirra og átt hlutdeild sem leiðbeinendur bæði í leik og starfi.
Segir skólann fullan hégóma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
En alltaf er nú reiðuféð best ...
11.7.2010 | 08:56
En þetta stemmir allt saman:
Guðrún Helgadóttir þáverandi þingmaður sagði að kortin myndu auka umframneyslu: það reyndist rétt
-að þau hækkuðu vöruverð: rétt
-að þau þarmeð auki verðbólgu: rétt
-að hægt sé að líkja neyslu með þeim við eiturlyf í einhverjum tilfellum: rétt
Nú berast mér æ fleiri sögur af fólki sem er að fara til baka til reiðufés, handbærir peningar blífa, skuldeyðsla tilheyrir munaðarlífsstíl sem er að dvína.
Kreditkortin voru algjör bylting á Íslandi en var líkt við eiturlyf á Alþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Af hverju bara sumar kirkjur?
6.7.2010 | 09:22
Ég fór þarna inn og sá hvorki Hvítasunnukirkjuna í Reykjavík (Fíladelfíu), Akureyri, Keflavík, Fljótshlíð né á Selfossi. Hvorki var Kristskirkja inni né Krossinn, ekki Vegurinn né Samhjálp.
Legg til að við gefum forsvarsmönnum síðunnar tiltal.
Heimasíða um kirkjur á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |