Færsluflokkur: Trúmál og siðferði

Skódi flotti ...

Einhverntíman keypti ég mér Skóda og fékk þarmeð tækifæri að takast á við klisjuna: Skódi ljóti ...  Þá gat maður nefninlega sagt í staðinn:

Skódi flotti
spýtir gotti

 

mbl.is Skódi fljóti, spýtir grjóti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússneskt ICESAVE?

Noh, þetta er eins og með ICESAVE. Nema sá stóri munur er að enda þótt okkur hafi þótt þetta vera ögrun við okkur einskorðuðust okkar mótmæli útavið við stöku mjálm í ráðamönnum og síðan upphrópunarmerki á samfélagsmiðlum.  Á erfitt með að sjá Rússa taka eins á málunum.
Hafa einhverjir velt fyrir sér áhrifum stórrar styrjaldar í Evrópu (þriðja heimsstyrjöldin) á okkur hér á Íslandi?  John Kerry er m.a.s. farinn að smjaðra fyrir Íslendingum óþvegið, minnist bæði á NATO og mikilvægi samstarfs.


mbl.is Kyrrsetja rússneskar eignir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Píratar og æskubrunnurinn

Til hamingju píratar, eiginlega er ég óvenjulega sáttur við þessa grein mbl, sérstaklega þegar ég les útúr því hvað ég sé ungur í anda að styðja ykkur :-)

Gegnsæi og lýðræði - frumforsendur í lýðræði.


mbl.is Píratar halda enn sjó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

#OccupyMálfrelsi, #dægurmál, #OpinUmræða

Já það er vandmeðfarið málfrelsið.  Ég þarf að rifja það betur upp hver sagðist hafa setið fund um hinsegin fræðslu þar sem fjallað var um endaþarmsmök og (ó)viðeigandi leiðir til þess.  Og þótti eftir „fræðsluna“ hefði betur setið heima með dóttur sinni.  En má kannski ekki tjá mig um það?  
Sjálfur tel ég mig vera málsvara tjáningarfrelsisins og les margt og ræði við marga um ólíka fleti og hugmyndir þessa vandmeðfarna frelsis.  Hér úr ritgerð eftir Guðmund Heiðar Frímansson af heimspekivef HÍ:


Það fyrsta er að hún festir þá grunnreglu fyrir íslenskt samfélag að öllum er frjálst að hafa skoðanir. Í öðru lagi þá segir að láti menn skoðanir sínar í ljós þá verði þeir að ábyrgjast þær fyrir dómi. Í þriðja lagi þá er kveðið á um að ritskoðun sé ekki heimilt að leiða í lög. Í fjórða lagi þá er kveðið á um að einungis sé heimilt að reisa tjáningarfrelsinu skorður með lögum og þau lög verði að setja í tilteknu markmiði sem tilgreind eru: þau verði að byggjast á allsherjarreglu, öryggi ríkisins, heilsuvernd, almennu siðgæði og vernda réttindi og mannorð annarra. Þau verði einnig að uppfylla tvö viðbótarskilyrði: lögin verði að vera nauðsynleg og samræmast lýðræðishefðum.


Vísindavefurinn tekur oft fyrir athyglisverð málefni á gráa svæðinu og bendir á að „mannréttindi séu yfirleitt skilin svo að réttur hvers og eins takmarkist af réttindum hinna.“  Aka réttur þinn til að sveifla hendinni endar þar sem nefið á mér byrjar.


Leitarvélin mín sýnir mér 5300 greinar við leitinni um hatursáróður en engar aðrar leiðbeiningar um hvað það nákvæmlega sé (nema skoðanir einhverra á vissum stöðum í Biblíunni að ógleymdum ummælum stjórnmálamanna um hvern annan).
Athyglisverður er dómur sem dr. Davíð Þór Björgvinsson bloggar um í fyrra.  Þar segir m.a.

„Dómstólinn hafi lengi tekið fram í dómum sínum að rétturinn til tjáningar taki einnig til þess að tjá skoðanir og hugmyndir sem móðga eða ofbjóða.“ 

Sem leiðir mig að meginpælingunni sem tengist útgáfu franska tímaritsins Charlie Hebdo.  Ritstjórnin varð fyrir árás eins og alkunna er en aldrei heyrði ég jafnaðarmenn fetta fingur útí umfjöllunaratriði tímaritsins.  Þó fjöllaði Habdo mjög móðgandi um allskyns samtíma málefni.  Þannig að réttilega má segja að hér gildi hinn eilífi tvískinnungur utanum pólitíska rétthugsun.  Nú fræði mig málsvarar og kyndilberar frelsisins: hvenær drepur maður mann? 

En það má efalaust segja Samfylkingaræskunni það til hróss hve öflugu anddyri þeir hafa komið sér upp, baklandi utan um þeirra hugðarefni.

Er ekki útvarp Saga því bara gríðarlega mikilvægur þáttur í þessari opnu umræðu sem ber að fagna.  Og hringja þangað sem oftast.


mbl.is Arnþrúður ánægð með #OccupySaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drónamorð Obamas

Sem yfirmaður Bandaríska heraflans er Obama persónulega ábyrgur fyrir því sem sumar heimildir telja vera 4700 aftökum með dróna eða fjarflugu, ómönnuðu, fjarstýrðu flygildi.  Aðrar heimilidir segja að aftökurnar séu ´bara´ 2400.  Undirskrift forsetans þarf á hverja árás (eða munnlegt samþykki og undirskriftavélin sér um restina). 

USA hóf notkun dróna til stríðsreksturs 2004 undir stjórn Georgs W. Bush en Obama jók þær til muna.  Mikið er rætt um fjölda fórnarlamba stríðsins meðal almennra borgara og sýnist sitt hverjum eftir því hvar í pólitík viðkomandi staðsetur sig.  Þannig rokkar t.d. fjöldi óbreyttra borgara sem hefur týnt lífi í drónaárás á bilinu 286 til 890, þar með talin 168-197 börn.  Meira að segja Amnesty International sem þó fylgir ríkisstjórn USA merkilega oft að málum hefur flokkað margar þessara árása undir stríðsglæpi.  Verst hefur Pakistan og Afganistan orðið fyrir árásunum en önnur lönd eins og Jemen og Sómalía eru líka í eldlínu utanríkisstefnunnar hjá forsetanum skotglaða.

Huffington Post fjallar um nýtt lagafrumvarp sem skyldar USA til að gefa út opinbera yfirlýsingu um fjölda dauðsfalla í kjölfar drónaárásar.  Að auki yrðu þeir að gefa út hvort hinir látnu hefðu verið álitnir stríðsmenn eða saklausir borgarar - afturvirkt til 5 ára.  Dianne Feinstein, senator í Kaliforníu lagði frumvarpið fram.

Ég mæli með að fólk kynni sér The Bureau of Investigative Journalism.  Þessi hópur rannsóknablaðamanna birtir athyglisverðar fréttir og fara miklu dýpra en almennir fjölmiðlar á Vesturlöndum sem virðast oft gera fátt annað en að prenta fréttatilkynningar og þýða fréttaskeytin frá Reuters og Co.

Hér klasaumföllun þeirra um dróna almennt og hér tölfræðin sem þeir hafa safnað um löndin 4 ofannefndu.


mbl.is Gíslar létust í drónaárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Píratar gegn skoðanakúgun

Gott að heyra í Helga Hrafni og hans mikilvæga innleggi í umræðuna um málfrelsið.  Við VERÐUM nefninlega að heyra báðar hliðar til þess að við getum tekið lýðræðislega ákvörðun.  Hver sem hún síðan er.  Fordómar eru byggðir á fáfræði - að upplýsingunni kominni er hægt að finna sér leið í lífinu.  Þetta á við um baráttu samkynhneigðra ekki síður en um brotaforðakerfi, við NSA jafnt sem persónufrelsi.  Og hafa síðan umburðarlyndi gagnvart skoðunum náungans.


mbl.is Skoðanakúgun ekki lausnin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver gæti Íslandspóstur þá stefnt?

Hvert er þá hlutverk Íslandspósts?
Mörg ríki Bandaríkjanna hafa séð í póstútibúunum ákv. bankahlutverk: postbank.  Banki sem sinnir grunnþjónustu og hefur önnur markmið en stóru bankastofnanirnar.  Venjuleg bankaviðskipti og hugsanleg neyslulán færðust þá hugsanlega yfir á póstbankann en bankarnir gætu sinnt sínum afleiðuviðskiptum og áhættustýrðu aflandsviðskiptum í friði fyrir okkur sem kjósum að leggja ekki nafn okkar við slíkar stofnanir.  Bankinn gæti haft hugmyndir Sparibankans hans Ingólfs til hliðsjónar: „það er ekkert lögmál að tekjur banka renni til eigendanna.  Þær gætu allt eins runnið til viðskiptavinanna.“ Ég myndi leggja fjármagn í stofnun slíkrar stofnunar og flytja viðskipti mín þangað - umsvifalaust.


mbl.is Póstrekstur ekki hlutverk ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

general malakoff stræks bakk

ótrúlegt!!!   Það er eins og maður sé staddur í gamalli jamesbond mynd - vondu kallarnir ósýnilegir EN ... james finnur ´on location´ hár sem hann greinir með dna-greininum sem q hafði komið fyrir í úrinu hans og kemst að því að monnípenní var dobbúlagent og ástmær malakoff kgb-generáls.  
Trúir þessu nokkur maður?

btw, fjallar cnn nokkurn tíman um hvað usa-ríkisstjórnin er að gera útum víðan heim?


mbl.is Rússar hökkuðu sig inn í Hvíta húsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigurkuflinn

Merkilega lítið merkileg grein og kannski bara til staðfestingar á fákunnáttu blaðamannsins sem þýddi greinina eða ritstjórnarfulltrúans sem gaf grænt ljós á hana út á netið.

 
Nú á ég tvö börn sem hafa fæðst í sigurkufli. Og ég tek það fram að ég er hvorki læknis- né ljósmóðurmenntaður en þori að fullyrða að það sé tiltölulega algengara að börn "fæðist" í sigurkufli við keisarskurð en við fæðingu.  

En greinin fjallar um barn sem var tekið með keisara, þ.e. fjarlægt út móðurlífi í fósturhimnunni án þess að læknirinn hafi rofið hana.  Og um að læknirinn hafi verið furðu lostinn yfir þessu afreki sínu.

Að barnið fæðist hinsvegar, þ.e. komist í gegnum fæðingarveginn án þess að himnan rofni þykir merkilegt og gæfumerki.


mbl.is Kom í heiminn í sigurkufli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lygarnar um Írak

Af öllum þeim lygum sem flökkuðu um Írak fyrir tilstuðlan blaðamannastéttarinnar er þessi nú líklega ein sú saklausasta.  T.d. lugu Bandaríkjamenn um tilvist efnavopna þar og fengu fjölmiðlaheiminn með sér (sem var nú ekki flókið þar sem hann var nú á bandi þeirra hvort eð var).  Þeir réðust síðan inn, drápu og eitruðu jarðveginn með geislavirkum úraníumskotum.
Síðan kom í ljós að það höfðu aldrei verið nein efnavopn í Írak en landið hefur aldrei rétt úr sér eftir innrásina.  Kannski óþarfi að þylja þetta allt upp, nóg hefur verið fjallað um þetta og út frá ýmsum sjónarhornum.
Breski rannsóknarblaðamaðurinn sem sýndi verkin sín á síðustu RIFF hátíð, John Pilger, hefur t.d. mikið fjallað um hlut fjölmiðlanna í árásinni í írak.  HEIMASÍÐA HANS
En af hverju þá að víkja einum frá - þegar öll árásin byggðist á einni stórri lygi - lygi sem enn dregur þjóðir í dilka. Og núna þegar þeir ætla að beita sömu aðferðafræði í Rússlandi - er ekki kominn tími til að draga herstjórnar- og aðferðafræði US-stjórnvalda í efa og hætta að eta allt hrátt sem frá þeim kemur?
Fjöllum tvíhliða um atburði og leitum gagna - ekki bara að þýða fréttaskeytin frá BBC og Reuters


mbl.is Fréttamanni vikið frá störfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband