Lygarnar um Írak

Af öllum þeim lygum sem flökkuðu um Írak fyrir tilstuðlan blaðamannastéttarinnar er þessi nú líklega ein sú saklausasta.  T.d. lugu Bandaríkjamenn um tilvist efnavopna þar og fengu fjölmiðlaheiminn með sér (sem var nú ekki flókið þar sem hann var nú á bandi þeirra hvort eð var).  Þeir réðust síðan inn, drápu og eitruðu jarðveginn með geislavirkum úraníumskotum.
Síðan kom í ljós að það höfðu aldrei verið nein efnavopn í Írak en landið hefur aldrei rétt úr sér eftir innrásina.  Kannski óþarfi að þylja þetta allt upp, nóg hefur verið fjallað um þetta og út frá ýmsum sjónarhornum.
Breski rannsóknarblaðamaðurinn sem sýndi verkin sín á síðustu RIFF hátíð, John Pilger, hefur t.d. mikið fjallað um hlut fjölmiðlanna í árásinni í írak.  HEIMASÍÐA HANS
En af hverju þá að víkja einum frá - þegar öll árásin byggðist á einni stórri lygi - lygi sem enn dregur þjóðir í dilka. Og núna þegar þeir ætla að beita sömu aðferðafræði í Rússlandi - er ekki kominn tími til að draga herstjórnar- og aðferðafræði US-stjórnvalda í efa og hætta að eta allt hrátt sem frá þeim kemur?
Fjöllum tvíhliða um atburði og leitum gagna - ekki bara að þýða fréttaskeytin frá BBC og Reuters


mbl.is Fréttamanni vikið frá störfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Kristján Gestsson

Fyrir þá sem leggja í að draga sannleiksgildi Írakstríðsins í efa, er myndin aðgengileg sem hann sýndi á RIFF sl. sumar:

The war you don´t see  
http://vimeo.com/67739294

Ragnar Kristján Gestsson, 12.2.2015 kl. 07:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband