Fjölmiðlalygar frá Sýrlandi

Ég rakst nýverið á myndir sem Saudíski ljósmyndarinn Abdel Aziz Al-Atibi tók og fóru "viral" á netinu.  Þetta voru uppstilltar myndir sem hann tók af dreng liggja milli tveggja steinhrúga en sagan sagði vera sýrlenskan dreng liggja milli látinna og grafinna foreldra sinna.  Myndirnar og sagan fóru eins og eldur í sinu um heimsbyggðina uns sannleikurinn tók að koma í ljós.  Hér ein frétt frá Indipendent sem segir frá falsinu. 

Sjálfsagt að skoða hlutina í samhengi og kyngja ekki öllu hráu sem fjölmiðlarnir segja.  Því frekar sjaldgæft er að blaðamenn geri mikið til að sannreyna nokkuð sem kemur út fréttastofunum, hvort sem þær heita AP, Tass eða Reuter.  Sjálfsagt að velta þeirri hugmynd hvenær fjölmiðillinn megi kallast lygafjölmiðill, þegar hann er sekur um að bera út lygi eða bara þegar hann beinlínis býr lyginni búning.

fakenews


mbl.is Átök milli Sýrlandshers og sveita sem Bandaríkjamenn styðja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

#égstyðljósmæður

Ljósmæður hafa tekið á móti öllum mínum börnum, það elsta fæddist á Eiríksgötunni og öll hin heima.  Á þessar stétt meira að þakka en flestum öðrum.  Verð líka að bæta því að enda þótt ég gleðjist yfir stuðningi Læknafélagsins við málstað ljósmæðra, stafar vandi ljósmæðranna m.a. af oftrú samfélagsins á læknum og vélunum þeirra sem segja ping. 


mbl.is Stjórn Læknafélagsins styður ljósmæður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kurteis varnarviðbrögð

Ég held að enginn hafi farið varhluta af þeim góðu og áhugaverðu hlutum sem #metoo hefur haft í för með sér. Allskyns hlutir hristir upp á yfirborðið og allt mundar þetta í átt að betri heimi fyrir bæði kynin. Nýjast af Nobelsnefndinni (var annars að endurlesa Nóbelskvæði eftir Þórarinn Eldjárn - mikið skáld er maðurinn). En einhverstaðar þykir mér þessar galdrabrennur orðnar þreytandi. Nú skal leitað áratugi aftur að flekklausum kandídötum. En allt þetta kom upp fyrir kosningu Ragnars Þórs. En ´jafnréttis´fulltrúinn (forkonan) er ósáttur. Kannski við kyn Ragnars? Læðist að grunurinn hvort eitthvað annað ´agenda´ sé í gangi.

Ég kaus hann á grundvelli yfirburða sinna umfram aðra frambjóðendur, til að sinna starfi sínu sem fulltrúi kennara. Ég kaus líka Önnu Maríu á sömu forsendum. Ég hef kynnst báðum lítillega og treysti bæði þeim kynnum og því orðspori sem af þeim fer, fyrir atkvæði mínu. Ég er ekki kunnugur æsku þeirra og uppvexti, þekki ekki mataræði né útivistarpælingar þeirra, veit ekki um hobbý né uppáhalds rithöfund (fyrrnefndur Þórarinn er ofarlega hjá mér). Veit ekki einusinni hvort þau eru á sakaskrá. En ég treysti þeim báðum til að leiða kennarastéttina á betri stað, með eða án mín.


mbl.is Áskorun til Ragnars á þingi kennara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Boltinn að rúlla

Já, nú fer boltinn að rúlla fyrir Miðflokknum.  Veit ekki til að Geir hafi verið orðaður við stjórnmál utan KSÍ.  Síðan var hann jú framhaldsskólakennari með raungreinaáherslu.  Verður spennandi að fyljgast hverju reikningshausinn með íþróttirnar í blóðinu fær framgengt í þessu gamla D-sveitarfélagi.


mbl.is Geir oddviti Miðflokksins í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirlýsingagleði Breska heimsveldisins

Mjög áhugaverð fullyrðing frú May og vissulega athugandi upp að hvaða marki þessar ásakanir hennar megi heimfæra uppá aðrar þjóðir.  Til dæmis okkur.  Mér er ennþá minnisstætt hryðjuverkalögin sem Bretar settu á okkur 2008 þegar Icesave féll.  Og yfirlýsingagleði Gordons Brown í því tilefni.  Tony Blair var 6 árum fyrr jafnvel ennþá yfirlýsingaglaðari þegar til koma að því að fullyrða að Saddam Hussein ætti efnavopn til að sannfæra landa sína til innrásar í Írak.  Læt til gamans fylgja krækju á lista starfsmanna sendiskrifstofa utanríkisráðuneytis Íslands erlendis. HÉR Hversu margir af þessum starfsmönnum gætu verið njósnarar? 

Er May svo mikið í mun að koma NATO í stríð við Rússa að hún magnar upp gömlu grýluna á tómum getgátum?  Því ekki hefur hún birt snefil af sönnunargögnum fyrir því að þetta novitjok eitur sé komið frá Rússlandi.


mbl.is Eru sendiráðsstarfsmenn njósnarar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband