... bíddu ha?
9.7.2016 | 16:55
Hvernig er það... ef þú ert bólusettur þá færðu ekki veikina sem þú ert bólusettur fyrir, rétt? Hvað kemur það þér við hvort aðrir eru bólusettir eða ekki?
Og... ef þú ert EKKI bólusettur þá færðu bara veikina og getur sjálfum þér um kennt. Og þá færðu veikina ekki aftur. Sem er líka gott, ekki satt?
Veikir innflytjendur koma af stað faraldri: Hljómar ögn eins og áróður sem Trump kom af stað til að styrkja stöðu sína gegn Hillary
![]() |
Óbólusettir valda mislingafaraldri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 16:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Flottur maður Jón Daði :-)
2.7.2016 | 17:37
Flottur íþróttamaður Jón Daði og Selfyssingar geta verið mikið ánægðir með hann. Raunar gera líka Eyrbekkingar smá tilkall til hans líka. En allir vildu jú Lilju kveðið hafa ... Hvað um það, flottur maður Jón Daði :-)
![]() |
Jón Daði er hvatning um að gefast ekki upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Blekking Hillary
8.6.2016 | 07:19
Stærsta blekkingin sem Hillary heldur á lofti er að hún sé fulltrúi kvenna. Hillary er fyrst og síðast fulltrúi fjármálaaflanna í ofurbönkunum (t.d. Goldman Sachs) og á Wall street. Hinsvegar er hún snjall pólitíkus sem telur reynir hér að telja konum trú um að það eigi að velja eftir kyni en ekki hugsjónum. Ósvinna er þegar feminisminn ryður jafnréttinu úr sæti.
![]() |
Söguleg stund fyrir konur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Með hatri gegn hatri?
25.5.2016 | 10:09
Hvenær helgar tilgangurinn meðalið? Stundum eru mótmælendur verri en það sem er mótmælt. Mér dettur t.d. líka í hug íhlutanir Bandaríkjanna (= NATO) gegn Assad í Sýrlandi eða gegn Ghaddafi í Lýbíu. Hvort tveggja startaði flóttamannastraumunum í Evrópu sem aftur kallaði á vöxt hægri öfgahópa. Dettur einhverjum í hug fleiri dæmi?
![]() |
Grjótkast við kosningafund Trump |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lýðræðið og bólusetningarnar
18.5.2016 | 20:13
Ég ef mikill fylgismaður þess að maður láti ekki segja sér hvað sem er án þess að skoða báðar hliðar málsins. Finnst það í raun forsenda og bakbeinið í lýðræði að eiga þetta val. Fyrir þá sem eru mér sammála læt ég því fylgja myndband um Dr. Suzanne Humphries, lækni sem kom og hélt fyrirlestur í Háskóla Íslands í fyrra. Hinir kíkja bara á Smartland
![]() |
Skikkaðir á námskeið um vísindi bólusetninga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
LOKSINS
18.5.2016 | 19:44
Loksins kemur heiðarlegt og málefnanlegt viðtal við Ástþór sem hefur verið að benda á mörg góð og athyglsiverð málefni þau 11 ár síðan ég flutti aftur til Íslands. Og heldur því áfram. Hef verið honum sammála um margt, ekki síst í kringum forsetakosningar, hvernig fjölmiðlar hafa bókstaflega gert úr honum trúð fyrir það eitt að hnýta baggana sína öðrum hnútum en margt samferðafólkið. Óska honum alls hins besta. Og takk mbl.is
![]() |
Leiði mannkynið úr styrjöldinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pólitísk aftaka blaðamanna
11.5.2016 | 07:54
Það hefur verið merkilegt að fylgjast með þessu ferli öllu, hvernig Jóhannes Kr. í broddi meðvirkrar fylkingar slátraði Sigmundi Davíð og ýmsum öðrum. Án þess að ég telji mig vera sérfræðing í skattamálum gat ég aldrei betur séð en Wintris væri lítið annað en bankareikningur erlendis. Vegna þess að Sigmundur átti peninga erlendis (sem hann hafði vel að merkja borgað skatta af á Íslandi) lagði Jóhannes dæmið upp sem hann væri glæpamaður sem sefjaður múgurinn krafði að yrði að deyja.
Nú þegar búið er að fá svar við skattamálum Sigmundar í ljós kemur að stormurinn um hann reyndist vera pólitísk aftaka, verður spennandi að vita hver spunameistarinn er sem lagði dæmið upp fyrir Jóhannes. Annars eru merkilega margir punktar í þessu dæmi öllu sem eru athygliverðir og fróðlegt verður að fá svar við þegar fram í sækir.
Hver er uppljóstrarinn sem þóttist hafa reynt að koma þessi til Wikileaks? Hvað er til í því sem Juan Carlos Varela forseti Panama sagði: að Panamaskjölin væru baktjaldamakka stórveldanna? Tengist það okkur og þá hvernig? Hvernig stendur eiginlega á því að engir stórlaxar í t.d. Þýskalandi, USA, Frakklandi osfr.osfr. Hvernig stóð á því að HÍ lenti ekki meira í umfjöllun en raun bar vitni? Í lögfræðilegri útungurnarstöð HÍ kenndu þeir ætti að stofna aflandsfélög eins lektorinn í skattarétti Kristján Vald. sýndi. Og Dorrit og Ólafur, er það ekki sami stormurinn í vatnsglasinu?
![]() |
Hátt í 400 milljónir í skatta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
A man´s gotta do what a man´s gotta do
30.4.2016 | 08:51
Flott hjá Jóni, ekki gefast upp :-)
![]() |
Blaðburður bjargaði íbúð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
hogginn???
25.4.2016 | 19:58
Prófarkalestur er mikilvægt fag og sú var tíð að prófarkalesarar við Moggann voru í miklum álitum og eftirsóttir. Þessi tíð er náttúrulega löngu liðin og sic gloria transit mundi og allt það. En BÍN kannaðist ekki við hogginn, þess í stað á líklega að standa höggvinn.
![]() |
Baráttumaður samkynhneigðra hogginn til bana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
kosningabarátta Bærings?
18.4.2016 | 20:49
Svona rjúka sumir frambjóðendur núna í gírinn.
Fyrirsagnirnar gæti hljóðað svona: Kók-kallinn hjólar í Óla.
![]() |
Ólafur er ekki maður orða sinna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |