Landkynning v/s ímyndarvandi?

„Þetta er mikil kynning fyrir Ísland að fá þessar vélar í loftið í
gegnum svo þekktan fréttavef sem CNN fréttavefurinn er,“ segir m.a. í fréttatilkynningu frá Mílu.  Einhvernvegin finnst mér þetta nánast vera að bera í bakkafullan lækinn að demba hörmungafréttum frá eylandinu í nyrðra.  En kannski er þetta eins og heitir á bankamáli: tilraun til leiðréttingar á ímyndarvanda mörlandans.
mbl.is CNN sendir beint frá gosstöðvum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hvað segir flokksforrystan nú?

Hvernig má koma þessu yfir á andstæðingana?  Eða er ekki bara betra að horfast í augu við eigin mistök!
mbl.is Hærri styrkir en Samfylking gaf upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EKKI BEND´Á MIG... SAGÐI FRAMKVÆMDASTJÓRINN

Eiginlega hefur lestur þessa doðrants sem ég hlóð mér niður af Alþingi sýnt mér eitt: þarna voru sverð Íslands, skildir þess og sómafólk búið að galopna vasana og munnana og sat hver um kjötkatlana eins og byr gaf.
Og núna á þessum pósthrunstímum stígur hver á fætur öðrum fram fyrir skjöldu og fyrrir sjálfan sig ábyrgð.  „Það vorum ekki við-heldur hinir, upplýsingarnar sem okkur bárust voru rangar.“  „Við vorum dregnir inn í ríkisstjórn á fölskum forsendum - allt var þeim að kenna sem stýrðu á undan okkur (en þá vorum við sko í stjórnarandstöðu).“  „OK, ég viðurkenni að við vorum smá meðvirk gagnvart brothættri ímynd fjármálakerfisins - but so...?)

En veistu hvað minn ágæti Skúli?  Svona er ekki iðrast.  Þegar maður iðrast horfir maður fyrst á bjálkann í eigin auga, þannig sér maður betur til að ná til flísinnar hjá hinum.  (Þetta gildir að sjálfsögðu líka fyrir hina ;-))  Þið þvoið nú ykkar þvott og útskýrið fyrir okkur hvaða baktjaldamakk var í gangi með viðskiptaráðherran sem þó var ykkar eigin maður?  Hann fékk 83 síðna plagg sem þú ættir að lesið vel að er ekki fullt af pólitísku skotum á hina flokkana.  Það líðist ekki lengur að þykjast ekkert hafa vitað og ekkert hafa grunað - þú varst framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar 2006-9 og þykist ekkert hafa vitað um hvað var að gerast í íslensku þjóðlífi þennan tíma?  Ég vissi meira úr blöðunum og las þó stopult.  Þessi pólitíska sjálfréttlæting er það sem kom okkur hingað - núna þurfum við krafmeira þvottaefni.  Öll Pressugreinin hér.


mbl.is Treysti um of á fyrirliggjandi upplýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegur Geir

Hann kom sorglegur fyrir í fréttunum í gær umkringdur þessum dökkbláu leiktjöldum.  Skýrslan talaði einmitt um þetta heilkenni: sjálfsréttlæti, oflæti og stórmennsku í stað iðrunar og vilja til að horfast í augu við sinn hlut.  Það er of mikil einföldun að hún sé tæk að segja að bankahrunið hafi verið bönkunum að kenna.  Talsvert nær sannleikanum er samsuða þeirrar hugmyndafræði sem bankarnir störfuðu eftir (sú stefna sem FLokkur Geirs er fulltrúi fyrir) og hins gamla bölvalds mannkyns: græðgi.  Formaður FLokksins kallaði þetta reyndar áhættusækni en þar er eins og bóndinn sagði: lítill munur á kúk og skít.
mbl.is Bankahrunið var bönkunum sjálfum að kenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær er réttlætinu fullnægt?

Já þetta er merkilegt.  Nú eru nöfn 4 starfsmanna hjá Glitni (GLB) (Lárusar Welding, Rósants Más Torfasonar, Magnúsar Arnars Arngrímssonar og Guðnýjar Sigurðardóttur milli tannanna á fólki fyrir utan þá þokkapilta, Jón Ásgeir og Pálma (?)*  Þeir tveir síðastnefndu beita gamla trixinu að sókn sé besta vörnin en allir fá þó vonandi það sem þeir eiga skilið.  Og það var einmitt það sem ég fór að velta vöngum yfir hvað ætti að vera. Nú, þökk sé þeim (?)* getum við ekki lengur byggt við Litla Hraun og ekki finnst mér þeir eiga skilið að fara á Bitru fyrstu árin.  Hinsvegar sá ég þá vel fyrir mér í samfélagsvinnu.  T.d. sem skólaliða í grunnskóla enda vegna þessu ástands sem þeir orsökuðu (?)* hefur verið skrúfað fyrir fjárveitingar til þeirra.  Þetta fólk hefur alltsaman þjálfaða líkama svo vel væri hægt að leggja á það líkamlega vinnu - sem er jú ofaná kaupið heilsusamleg.  Sjúkrahúsin gætu nefninlega þurft á góðu starfsfólki að halda í matsal og við þrif.  Umönnun aldraðra er líka málaflokkur sem hefur þurft að líða fyrir kreppuna.

Ég fór síðan að hugsa um þessa 6 milljarða skuld og hversu lengi þau yrðu þá að vinna fyrir henni.  Ef Pálmi iðrast eins og hann sagði í viðtalinu við DV vill hann ábyggilega ekki þyggja neinn refsafslátt heldur taka út fulla refsingu eins og honum ber.  Við gætum skipt milljörðun 6 þannig niður að frumkvöðlarnir (?)* beri helming og þau hin sitt 12.5%.  Að sjálfsögðu er þetta bara grundvöllur sem breytist eftir því sem kurl koma til grafar.  Ég kysi að borga þeim til refsiminnkunar 1800 krónur sem eru minnir mig dæmigerð laun ófaglærðs verkafólks enda nýtist þeim menntun þeirra ekki neitt við þessi störf.

Fjórmenningarnir úr Íslandsbanka fengju þá að vinna í 208.333 klst sem gerir 47 og hálft ár (miðað við 12 klst. vinnudag).  Þau eru ung og ættu að ná þessu (?)*.  Þeir skrúðkrimmar (?)* hinsvegar verða eitthvað lengur á fótum eða um 190 ár og er þó ekki fullséð um þeirra skrúð enn enda skilanefndin ekki búin að gefa út sína skýrslu.  Er eitthvað réttlæti í þessu?

 

 

*spurningarmerkið er til að tjá þennan réttarfarslega efa sem þau eiga öll rétt á: saklaus uns sönnuð sek.


mbl.is Glitnismál vekur furðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samráð - enn einu sinni?

Mikið óskaplega finnst mér þetta illalyktandi hvernig olíuverð hækkar ALLTAF fyrir ferðahelgar og lækkar síðan nokkrum dögum síðar.  Það er segin saga sem bensínbókin í bílnum mínu staðfestir að hverja einustu (!) ferðahelgi undanfarin 5 ár hefur bensínverð ALLRA stöðva hækkað. 
mbl.is Eldsneytisverð lækkar á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hreinsum garðinn

Áratugum saman hafa Evrópuþjóðir vitað að hingað sé gott að fara því kvenfólkið okkar er svo „frjálslynt“ í kynferðismálum - einskonar kynlífstúrismi viðgengist eins og í t.d. í Taílandi og Senegal.  Frægar sögur af því bárust við komu herskipa (man t.d. í svipinn eftir einhverju ítölsku) og blaðamaður sagði frá öllum beru bossunum sem sáust hreyfast í brekkunum við sundahöfnina.  Á stríðsárunum skilst mér að óskilgetin börn hafi gjarnan heitið Hermannsson eða sú nýlunda tekin upp að kenna börnin við móðurina.  Mikið óskaplega held ég við getum verið ánægð með að geta boðið okkur sjálfum (og ferðamönnum í beinu framhaldi) uppá eitthvað betra en pornóið.
mbl.is Nektardansbann hefur áhrif á staðalímynd Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umbætur eða afturför?

Þvílíkt kjaftæði er þessi umræða komin útí.  Þarna er lýsandi dæmi þess hvernig forræðishyggjan felur sitt fúla fés undir yfirbragði umburðarlyndis.  Fyrst Belgía þorði ekki að vera fyrsta landið til að leyfa það frelsi sem felst í fjölbreytileika - well, þá verða þeir bara þekktir í sögunni fyrir hið gagnstæða.  Og hvernig fer fólk sem er reiðubúið að trúa því að vændiskonur gangi til verka sinna af sömu gleði hjartans og innblásinn leikskólakennari, hvernig fer fólk að því að afneita þeim möguleika að þær beri þessi trúartákn af sömu sannfæringu og allir þeir sem hafa krossinn hangandi um hálsinn og viðurkenna þarmeð kristnar rætur sínar.

Höfum við hérna dæmi um sexualiseringu vesturlanda?  Fyrst vændiskonur ganga erinda karlmanna eru þær OK, en af því að burkurnar feli líkamann eigi að banna þær?  Frá þessu sjónarhorni er þetta bann klárlega afturför.  Ekki satt?


mbl.is Belgar vilja banna andlitsblæju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÁNAST auðmjúkan?

„„Að skynja mátt náttúrunnar og þá stórbrotnu fegurð sem í eldgosinu
felst gerir mann nánast magnvana og auðmjúkan gagnvart höfuðskepnunum.“  Ég steytti aðeins við þetta orðalag, hvaða stórkostlega sjónarspil ætli það sé sem Drottinn getur sýnt sem fái eldfjallafræðing til að standa ALGERLEGA auðmjúkan frammi fyrir sér?
mbl.is „Eldflóðið steypist ofan hlíð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eyðing Sódómu?

Kemur mér kannski ekki svo á óvart Wink , ha?
mbl.is Sódómu lokað vegna reykskemmda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband