Er Stóri Bróðir búsettur á nesinu?

Er ekki talsverð „Big Brother“ lykt af þessu?  Eftirlitsmyndavélar sem hafa vakandi auga með ferðum borgaranna - gæslan fer huldu höfði en augun þó alsjáandi ... 24-7
mbl.is Eftirlitsmyndavélar settar upp á Seltjarnarnesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afgamlir dóphausar ...

Kannski dæmigert hvernig menn sem hafa lifað í „skemmtana“iðnaðinum svona lengi hafa misst alla dómgreind varðandi allt nema eigin neyslu.  Kannski svipað og mennirnir sem lifðu og hrærðust í peninga„iðnaðinum“ misstu alla dómgreind varðandi allt nema eigin græðgi.  Raunveruleikatengslin virðast horfin og allt sem þeim þykir eðlilegt finnst þeim öllum hljóti að þykja eðlilegt.
mbl.is Vill leyfa fíkniefni til reynslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérleiða-Siggi

AA samtökin tala stundum um fyrirbærið „Sérleiða-Sigga“: fólk sem ímyndaðrar stöðu sinnar vegna á rétt á vægari/harðari/mýkri/fegurri/innihaldsríkari/bragðbetri/... meðferð en samferðafólk sitt.  Þetta fólk finnst það gjarnan betra en annað fólk og telur sig geta sett fram kröfur um þessa sérmeðhöndlun í nafni og krafti þess.

Ef lýst er eftir meintum brotamanni, hvort heldur hann heiti Lalli Johns eða Siggi E., og hann finnst ekki skilst mér (ólöglærðum) að gefin sé út handtökuskipun.  Ef talið sé að viðkomandi sé erlendis er leitað eftir stuðningi Interpol.  Standard procedure.  Sjálfsagt eru bæði Bubbi og Jakob Magnússon ósammála en það breytir jú minnstu.
mbl.is Handtökuskipun alltof harkaleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafi Ragnari að kenna?

Á ekki að reyna að kenna forsetanum um þetta líka?  Nóg var hann milli tannanna á þeim sem telja túrisma bestu leið okkar úr krísunni.
mbl.is Hætt við tugi ráðstefna á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tími brostinna væntinga

Sem innlegg í þessa umræðu: ef ég vænti einhvers og miða mínar aðgerðir út frá þessum væntingum, er þá ekki hæpið og óeðlilegt að tala um TJÓN ÞJÓÐARBÚSINS ef þessar væntingar ganga ekki eftir?  Væntingar í fjárhagsspám ættu ekki að byggjast á of mörgum óvissuþáttum ef þær eiga ekki að kallast „gambling“.  Einn óvissuþátturinn byggir á þeirri óútreiknanlegu skepnu sem túrhesturinn er.  Annar ekki síður óútreiknanlegur er vissulega líka Almættið sem sprautaði ösku og eimyrju út um allan heim.
mbl.is Tjón þjóðarbúsins stefnir í 10 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um ósjálfstæða greiningu fjölmiðlanna

Það komu nú heldur betur í ljós afleiðingar þess að blaðamenn væru virkir þátttakendur í fjármálum og pólitík, svo maður noti orðalag skýrslunnar: lítið um sjálfstæða greiningu fjölmiðlanna.  Störf umsækjenda þekki ég lítið en hvet til allrar umræðu innan BÍ. hvernig þeir fái rekið af sér slyðru- og aftaníossaorðið.  Blaðamenneska á ekki að vera sókn gegn einum pól stjórnmálanna á meðan nuddað sér er uppað hinum, heldur óvilhallur fréttaflutningur JAFNVEL þótt hann beinist gegn eigin skoðunum á þjóðmálum.
mbl.is Framboð framkvæmdastjóra veldur titringi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

líka á Eyrarbakka

Ég þvoði bílinn í gær og strauk af rúðunni í morgun fíngerðan svartan salla: ösku.  Yfir öllu er slykja gráma, dagar myrkurs og niðdimmu, dagar skýþykknis og skýsorta hafa borist til okkar (Sef 1.14-15).
mbl.is Öskufall á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verri menntunaraðstaða?

Nú halda atlögurnar að menntakerfinu áfram.  Bandaríkjamenn eru í miklum vandamálum þar sem niðurskurður hefur verið á bilinu 5-10% eftir fylkjum.  Þeir hafa mætt þessu með niðurskurð á skólaárinu, -vikunni og -deginum, stærri bekkjum og færri stuðningsfulltrúum, fyrir utan uppsagnir fjölda kennara.  Auðvitað lendir þetta fyrst á öllum stundakennurum og lausráðnum (eins og í Hfj.) en þegar fram í sækir á öllu starfsfólki.  Mest bitnar þetta þó á menntun í landinu og börnunum okkar.

Takið eftir þessari ömurlegu klisju að kalla alltof stóra bekki og yfirfulla skóla „meiri möguleika á félagslegum samskiptum í fjölbreyttari nemendahópi.“  Ég óttast að þarna séum við ekki farin að bíta úr nálinni.


mbl.is Hafnfirskir skólar sameinaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auglýst eftir eldfjalla-viðskiptahugmyndum.

Úr síðustu færslu sem spannst út frá einni arfavitlausri hugmynd (sjá hér) langar mig að bjóða hugmyndasmiðum og framkvæmendum að hittast hérna og skiptast á.  Annar hópurinn er vitagagnslaus án hins svo þetta ætti að ganga vel upp.


Hugmyndirnar sem upp komu eru frá Snowman
Selja öskuna í litlum skömmtum og byrja strax á meðan hraunið er heitt.  Setja á E-Bay og aðrar síður.

Ein frá Ástu Maríu

Og frá mér:
Sætir litlir hraunmolar á stalli með skilti undir:

My friend went to see the Eee-fjeel-you-kull and all I got was this lousy lavapiece.

 

Hvet ykkur að hugstorma hingað inn - án þess að vera allt of mikið að spá í því hver framkvæmir hugmyndina heldur að við séum að vinna saman - nýtt Ísland.


Stjórnleysi náttúruaflanna

Merkilegt að lesa þetta: að heilli þjóð skuli vera ritskoða einmitt það sem okkur er orðið þokkalega sjálfsagt: að við höfum einmitt enga stjórn yfir náttúruöflunum.  Reyndar höfum við býsna litla stjórn yfir ýmsu öðru líka en það er önnur saga.  En hvernig ætli The Peking Enquierer (?) útskýri eldgosið okkar, að íslensk stjórnvöld skrúfi frá krana til að skjóta ösku yfir Evrópu?
mbl.is Múmínálfarnir vekja áhyggjur í Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband