Sigmundur og Wintris
17.9.2016 | 21:27
Jóhannes Gunnar Bjarnason, framsóknarmaður á Akureyri, sagði sig úr flokknum eftir að núver
eh fyrrverandi samherjar hans höfðu skilið að Wintris var ekki vandamál orsakað af Sigmundi heldur því hvernig RÚV með Jóhannes Kr. í fararbroddi kaus að klekkja á þáverandi forsætisráðherra. Ég reikna með að Framsóknarflokkurinn sé sterkari eftir brottför Jóhannesar - og ábyggilega betur kominn.
Frá mínum bæjardyrum séð gerði Sigmundur grein fyrir öllum sínum fjármálum og allt var uppi á borðum. Og samt hef ég aldrei verið framsóknarmaður. Verð þó að viðurkenna að SDG gerði býsna fína hluti á þeim tíma sem hann stýrði. Kannski maður kjósi hann bara næst?
Sigmundur með afgerandi forystu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það eru ótrúlega margir af mínum kunningjum sem ætla að kjósa hann.
Helga Kristjánsdóttir, 18.9.2016 kl. 04:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.