Úff, fer nú þetta af stað

… og einhverjir krefjast þess að náð verði í MP5 hríðskotabyssurnar úr tollvörugeymslunni eða aftur frá Norge (eða hvar sem þær eru í dag).  Og að löggan vopnavæðist nú almennilega vegna yfirvofandi árásar Salmans Tamini og kollega á DV (sem birti líka myndirnar frá Charlie Habdo).  Og að Siðmennt og Vantrú bölsótist út í öll önnur trúarbrögð en sín eigin.  Og krefjist afnáms kristinna gilda.  Og svínshausar fara að birtast á lóðum múslíma.  Og krossar brenna.  Og það takist loksins að etja saman fólki með því að telja því trú um að trúarbrögð séu rót alls ills og verði að uppræta þau og allir séu „vondir menn“ sem trúi á Guð (hvaða nafni sem þeir nefna hann) og hljóti að vera vitleysingar sem best sé að drepa …

Deildu og drottnaðu.  Og hver græðir eitthvað á þessu?

Meðfylgjandi sjáskot er frá DV í morgun á slóðinni:
http://www.dv.is/frettir/2015/1/9/gridarleg-undirliggjandi-olga-born-neitudu-ad-taka-thatt-i-kyrrdarstund/

Vek sérstaka athygli á því sem Kristján segir með samanburði á tengslum kristni við fjöldamorð Breiviks, og múslíma við fjöldamorð Kouachi-bræðra.

Skjáskot frá DV


mbl.is Óskráðir árásarrifflar hér á landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sælir likurnar eru litlar já. En þær eru fyrir hendi engu að síður.

það er talið að bara frakklandi séu um 15þús rótækir múslimar sem vilja grípa til vopna. Hvað eru þeir þá margir hér sem bræða þetta með sér? og á þeim ekki eftir að fjölga? 

Nei lögreglan á að hafa ÖLL þau vopn og verjur sem hún telur nauðsinlegar. En vonandi þarf hún auðvitað ekki að nota þetta en það erannað mál...

ólafur (IP-tala skráð) 10.1.2015 kl. 11:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband