Heimafæðingar frábærar

Alveg er það nú ótrúlegt þetta horn sem læknisfræðin hefur í síðu heimafæðinga og starfs ljósmæðra almennt.  Öll börnin mín nema það fyrsta hafa fæðst heima.  Allar skoðanir höfðu verið framkvæmdar á spítalanum og allt lá nokkuð ljóst fyrir. Deyfð ljós, kerti og róleg stemning, tvær ljósmæður sem höfðu gefið sér tíma og kunnu þá list að taka sig til baka þegar aðstæður kröfðust.  Voru samt alltaf til staðar.  Kann þessari starfsstétt bestu þakkir fyrir.

Annars er samanburður hæpinn við USA, hér er allt annað heilbrigðiskerfi en þar, ljósmæður hafa betra og mikilvægara nám að baki og eru í allt öðru samstarfi við fæðingardeildir en í Bandaríkjunum.  Síðan eru fjarlægðir ennþá miklu styttri á sjúkrahús hérlendis en ytra - ef eitthvað ófyrirséð kemur upp.  Í raun jafn stuttar og innan illmannaðra og oftroðinna sjúkrastofnana.  Umræðan á Suðurlandi litast af ótta við enn frekari niðurskurð til heilbrigðisráðuneytið svo allir sunnlendingar þurfi að sækja t.d. fæðingarþjónustu til höfuðborgarsvæðisins.  Vona samt almennt fyrir heilsugæslu og læknisþjónustu utan höfuðborgarsvæðisins að ekkert verði af fyrirhuguðu hátæknisjúkrahúsi.

Hvet síðan alla verðandi foreldra til að taka reynslu framyfir menntun og tala við ljósmæður um fæðingar frekar en lækna .


mbl.is Segja heimafæðingar áhættusamari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband