dragg, um drögg, frá dröggi, til dröggs
6.8.2010 | 11:44
Nú er ekki lengur þorandi að hafa skoðun á Hinsegin dögum svo ég held skoðun minni fyrir mig á hópi sem á ekkert sameiginlegt nema þá kynhvöt sem beinist að eigin kyni. Hinsvegar er þessi borgarstjóri merkilegt kerti sem minnir mig á söguna um fjöðrina sem var þar að finna sem vindar blésu henni. Gnarr er einkar viðfeldinn kall sem hefur daðrað við hina ýmsu þjóðfélagshópa, kallar sig trúð á góðum degi, titil sem virðist kannski ná kjarna þess sem hann hefur fram að færa. Í öllu falli er ég óskaplega feginn að hann sé ekki við stjórnvölinn í mínu bæjarfélagi, nógu erfitt er þar samt.
En fyrir mig fávísan, er dragg bara þegar karlmenn íklæðast kvenmannsfötum? Ekki þegar konur íklæðast karlmannsfötum?
![]() |
Óvæntur gestur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |