Færsluflokkur: Trúmál og siðferði

Christian one-liners

Ágætu bloggfélagar.  Ég hef lítið komið hingað það sem af er sumri enda rykfellur tölvan í húsaviðgerðum og öðrum þeim athöfnum sem tilheyra sumrinu á þessum bæ.  Þessar tuggur, frasar, kliskjur (eða hvernig sem hægt er að þýða one-liners) eru misalvarlegar, spanna frá mikilli visku yfir í ... tja.... minni visku, en ég vona að þið getið haft gaman að.  Ég verð samt í lauslegu sambandi, les hjá ykkur en er lítið að athafast.  Eigið sem best sumar Smile

Don't let your worries get the best of you; remember, Moses started out as a basket case.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*


Many folks want to serve God,  but only as advisers.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*

It is easier to preach ten sermons than it is to live one.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*

The good Lord didn't create anything without a purpose, but mosquitoes come close.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*

When you get to your wit's end, you'll find God lives there.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*

People are funny; they want the front of the bus, the middle of the road, and the back of the church.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*

Opportunity may knock once, but temptationbangs on your front door forever.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*

Quit griping about your church; if it was perfect, you couldn't belong.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*

If your church wants a better Minister, it only needs to pray for the one it has.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*

Some minds are like concrete, thoroughly mixed up and permanently set.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*

Peace starts with a smile.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*

I don't know why some people change churches; what difference does it make which one you stay home from?

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*

A lot of church members who are singing "Standing on the Promises" are just sitting on the premises.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*

Be ye fishers of men. You catch them - He'll clean them.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*

Coincidence is when God chooses to remain anonymous.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*

Don't put a question mark where God put a full-stop.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*


Don't wait for 6 strong men to carry you to church.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*

Forbidden fruits create many jams.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*

God doesn't call the qualified, He qualifies the called.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*


God grades on the cross, not the curve.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*


God loves everyone, but probably prefers "fruits of the spirit" over "religious nuts!"

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*


God promises a safe landing, not a calm passage.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*

He who angers you, controls you!

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*


If God is your Co-pilot - swap seats!

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*


Prayer:  Don't give God instructions -- just report for duty!

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*


The task ahead of us is never as great as the Power behind us.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*


The Will of God never takes you to where the Grace of God will not protect you.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*

We don't change the message,  the message changes us.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*


You can tell how big a person is by what it takes to discourage him.

*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*+*


The best mathematical equation I have ever seen:
1 cross + 3 nails = 4 given.


Kristilegt rapp/hiphop

Rakst á þennan gaur sem kallar sig Crusified og býður uppá ókeypis niðurhal af nýjasta diskinum sínum Christ Life (http://www.getcrucified.com/).  Skemmst frá því að segja að þetta er hinn ágætasti diskur og ekki síst textarnir sem eru predíkanir og vitnisburðir vel yfir meðallagi.

Hann er líka að finna á http://www.reverbnation.com/getcrucified 

Nema hvað, um að gera að koma þessu í dreifingu til okkar InLovesem hafa gaman að svona tónlist !!!


Spurgeon á ferðalagi

Einn daginn ferðaðist Spurgeon (1834-92) frá London til afskekktst þorps til að predíka.  Á heimferðinni tók hann eftir því að hann hafði týnt farmiðanum sínum.  Hinn farþeginn horfði uppá hvenig hann leitaði í öllum vösum uns hann spurði Spurgeon að lokum hvort hann hefði týnt einhverju.  Spurgeon sagði honum að hann hefði týnt farmiðanum sínum og hann heldur enga peninga.  „En,“ bætti hann við, „ég er á ferð í þjónustu Drottins míns og Guð hefur nú svo oft gripið inní atburðarásina þegar ég hef átt í vandræðum.  Þessvegna trúi ég því að hann leysi líka þetta vandamál.  Á þessu augnabliki kom lestarvörðurinn inn í vagninn til að athuga farmiðana.  Hann snerti húfuderið létt í kveðjuskyni þegar hann sá ferðafélaga Spurgeons.  Sá sagði hinsvegar: „Hér er allt í lagi, William,“ svo vörðurinn gekk leiðar sinnar.  „Merkilegt,“ sagði Spurgeon, „hann spurði mig alls ekkert eftir farmiðanum.“  Hinn svaraði og sagði: „Hérna hefur þú enn annað dæmi um þá Guðlegu forsjá sem þú varst að segja mér af.  Þú mátt vita að ég er forstjóri þessa járnbrautarfélags og án efa hagræddi Guð því þannig að ég sæti með þér í vagninum þér til aðstoðar í vandræðum þínum.

Við eigum mikinn Guð, jafnt í gær, dag og á morgun 


Wesley og þjófurinn

Eitt sinn er evangelistinn John Wesley (1703-1791) var á leið heim kvöld eitt eftir samkomu var ráðist á hann.  Þjófurinn hafði ekkert uppúr krafsinu utan nokkrar smámyntir og 2-3 bækur.  Þegar þjófurinn tók hinsvegar til fótanna kallaði Wesley hátt á eftir honum: „Bíddu, ég hef nokkuð sem er miklu betra fyrir þig!“  Þjófurinn stöðvaðist og snérist á hæli.  „Vinur minn,“ sagði Wesley, „kannski muntu einn daginn iðrast þessa lífsstíls.  Mundu þá eftir því: Blóð Jesú Krists þvær þig af allri synd!“  Þjófurinn hljóp áfram burt svo Wesley bað fyrir honum, að þessi orð fengju borið ávöxt.
Árum síðar stóð Wesley við dyr kirkjunnar og kvaddi kirkjugesti, þegar ókunnugur maður kom upp að honum.  Honum til mikillar undrunar var þarna um að ræða þann sem fyrr hafði rænt hann.  Í millitíðinni hafði sá snúist til trúar á Jesú Krist og var orðinn að heiðarlegum kaupsýslumanni.  „Og það er þér að kenna,“ sagði maðurinn brosandi.  „Nei, nei, vinur minn,“ mótmælti Wesley, „ekki ég, heldur hið dýrmæta blóð Krists sem hreinsar af allri synd.!“
John Wesley hafði virkilega gefið ræningjanum þetta kvöld eitthvað miklu verðmætara: Fagnaðarboðskapinn um frelsunina fyrir Jesús Krist.
Biblían orðar það á þennan hátt: „Blóð Jesú, sonar HANS, hreinsar oss af allri synd.“ (1Jóh 1.7)

Er til önnur leið en leið helgunar og hreinsunar ???

Ég er ennþá að lesa „Kristnir píslarvottar,“ eftir Curt Björgquist í þýðingu Ásmundar Eiríkssonar sem Fíladelfía gaf út 1949.  Er kominn þar við sögu að árið er 284 og Diocletíanus er orðinn keisari í Rómaveldi.  Síðan stendur um hinar innri ástæður:


Þá miklu velsæld, er kristnir menn áttu við að búa, ár eftir ár, kunnu þeir ekki með að fara.  Eusebíus sýnir fram á, hvernig velgengnin og frjálsræðið meðal hinna trúuðu, hafði hægt og hægt opnað dyrnar fyrir léttúð og andlegum sljóleika.  Upphefð og virðing, er margir kristinir menn hlutu, hleypti af stað öfund og óvináttu bræðra á milli.  Af því leiddi deilur, nagg og ýmiss konar óvirðingar.  Forstöðumenn risu í gegn forstöðumönnum og söfnuðir í gegn söfnuðum. 
Þá leyfði Guð ofsóknunum að skella yfir.


Kirkjan þarna var ofsótt eins og kirkjan er ofsótt í mörgum löndum en óx samt mjög hratt.  Eftir að hafa heyrt bróður Yun (Heavenly Man/Himmelsbürger/man ekki hvað hún heitir á ísl) segja frá vexti húskirkjanna í Kína þrátt fyrir svakalega ofsóknir hlaut ég að skoða hvernig vesturlönd stæðu sig.  Man að Yun talaði um að stærsta vandamál sem vestræn kirkja stæði frammi fyrir væri velmegunin.  Svissnesku pastorinn Ivo Sasek talar ekki um annað en leiðir kristinnar kirkju út úr vandamálum velmegunar.  Ofsóknir á okkar kirkju eru fyrst og fremst vegna þess að við leyfum þeim að gerast – innri ástæður.  Hérna er enginn fangelsaður af trúarlegum ástæðum – einna helst að blogginu manns sé lokað vogi maður sér að kalla hlutina réttum nöfnum en allt gerist samt á mjög “faglegum nótum”.  Vegna þess að kristnir hér, ólíkt öllum ofsóttum kirkjum fyrr og síðar, taka einfaldlega þátt í öllu sukkinu með heiminum.  Þess vegna kemur aldrei til þess að Kristur tali um okkur eins og hann segir við föður sinn í Jóh 17.14:
Ég hef gefið þeim orð þitt og heimurinn hataði þá af því að þeir eru ekki af heiminm, eins og ég er ekki af heiminum.  ... (v.23)) ... ég í þeim og þú í mér svo að þeir verði fullkomlega eitt, til þess að heimurinn viti að þú hefur sent mig og að þú hefur elskað þá eins og þú hefur elskað mig.


Útlitslega séð skerum við okkur ekki úr, við eru jafn ofnærð (lesist: andleg og líkamleg offita) og heimurinn (nb. á vesturlöndum).  Við eigum jafnerfitt með að láta enda ná saman, við eyðum jafnmikið um efni fram.  Við þráum sama lúxusinn og leyfum okkur jafnmikið.  Börnin okkar hafa sama hlufall af ADHD og standa sig jafnilla (/vel) í skólunum.  Við vinnum jafn ofsamikið og eyðum jafnlitlum tíma með börnum og fjölskyldum.  Skilnaðir eru hjá okkur jafntíðir, fyllerí og sjálfsmorð líka. Við horfum á sömu sjónvarpsþættina og ræðum og rökræðum á sama máta.  Við getum skrifa fallega hluti á netinu en heimilin okkar og prívatlífið er jafn heltekið af einstaklingshyggju og jafn innihaldsrýrt og hjá hinum.  Þegar upp er staðið, frá hverju erum við eiginlega frelsuð?  Og af hverju ætti heimurinn að hata okkur þegar við stöndum okkur jú jafnilla og hann?  Salt jarðar?  Ljós heimsins?  Kannski spurning hvort Moggabloggið sé réttur grundvöllur fyrir umræðu af þessu tagi en ég veit ekki að hún eigi sér stað annarstaðar.  Þigg leiðréttingu fagnandi.

En ég vil ekki lengur taka þátt í þessu.  Höldum við virkilega ennþá að það sé til önnur leið en helgun og hreinsun?


Píslarvætti Apollóníusar

Nú er ég alveg að verða búinn í prófum en gat ekki alveg á mér setið að deila með ykkur kvöldlesningunni minni.  Á bókasafninu rakst ég á merkilega bók: „Kristnir píslarvottar,“ eftir Curt Björgquist í þýðingu Ásmundar Eiríkssonar og sem Fíladelfía gaf út 1949.  Í einn stað hræðileg frásögn af pyntingum og aftökum trúsystkina okkar en á sama tíma stórkostleg lesning sigurs andans yfir holdinu.  Svo ég vil deila einum kafla, XI, með ykkur
Ég fann í þessum kafla margt sem er líkt með okkar tímum sem ég eftirlæt þeim sem les þetta að sjá.  Síðan væri gaman ef einhver gæti hjálpað mér að sjá hvert sé fánýti og hégómleiki hjáguðanna, sem samtíð okkar trúir á.  Annað sem gaman væri ef einhver útskýrði hvernig hafi staðið á því að því fleiri kristnir sem voru myrtir á þessum tíma, því meira fjölgar þeim.

XI kafli, Píslarvætti Apollóníusar
Á ríkisstjórnarárum Markúsar Aurelíusar og eftirmanns hans, Kommódusar, sem var tvennt í senn; siðlaus og treggáfaður (180-192), var viðunandi friðsamur tími fyrir kristindóminn.  Á því tímabili gekk fjöldi manns til kristinnar trúar.  Var þá svo komið að kristindómurinn hafði breiðzt út meðal allra stétta í þjóðfélaginu.  Þannig segir Eusebíus frá, að „margir ríkir menn í Róm og ættgöfgir hafi, ásamt fjöskyldum sínum og frændliði, látið frelsast.“
Samt sem áður eru nokkur dæmi um það, að kristnir menn þurftu á þeim tíma að líða píslarvætti.  Í Madura voru t.d. tveir menn teknir af lífi fyrir trú sína, og í Frygíu var hópur kristinna manna líflátinn.  Í Róm voru margir dæmdir í þrælkunarvinnu til Sardíníu.
- - -
Appóllóníus var af egypzkum ættum.  Hans rétta og upphaflega nafn var Sakkeas.  En eins og margir fleiri landsmanna hans hafði hann orðið fyrir áhrifum frá Hellenistum.  Seinna flutti hann til Róm og komst þar til mikilla virðinga vegna lærdóms síns í vísindum og heimspeki.  Hér var það, í hinni miklu heimsborg, að hann tók trúna á Jesúm Krist.  Nokkru seinna bar einn af þrælum hans sök á hann fyrir það, við yfirmann lífvarðarins, að hann væri kristinn.
Þegar Appóllóníus var spurður um það, hvort hann væri kristinn, játaði hann því.  Næst var hann spurður, hvort hann vildi ekki votta keisaranum guðdómlegan heiður.  Því neitaði hann.  Nú var ekki um annað að ræða fyrir héraðsstjórann, Perennis, en að hefja réttarhöld yfir honum, þótt það væri á móti hans eigin vilja.
 - - -
Við skulum nú tilfæra hér, í mjög stuttu máli, þáttinn um píslarvætti Apollóníusar. 
Þegar Appóllóníus kom fyrir réttinn, hófust réttahöldin
Héraðsstjórinn: Appóllóníus, ert þú kristinn?
Appóllóníus: Já, ég er kristinn, og þess vegna heiðra ég Guð og óttast Hann, sem skapað hefur himin og jörð og hafið, og allt, sem í þeim er.
Héraðsstjórinn: Skiptu um hugarfar. Hlýddu mér, Appóllóníus, og sver við herra okkar, Komódus keisara.
Appóllóníus: Hlýð gaumgæfilega á mál mitt, Perennis, er ég verð nú að halda hér fyrir þér alvarlega varnarræðu.
- - -
Í varnarræðu sinni benti nú Appóllóníus á, að rétt hugarfarsbreyting gæti ekki byggzt á því, að menn hyrfu frá því að hlýðnast boðum Guðs, heldur hinu, að maðurinn ætti að hverfa frá öllu ranglæti, frá hjáguðadýrkun, frá vondum hugsunum og öllu drottinvaldi syndarinnar.  Ennfremur sagði hann, að kristnir menn hefðu það boð frá Drottni, að þeir ættu aldrei að sverja, en ætíð að segja sannleikann.
Perennis endurtók nú á ný, það sem hann hafði áður sagt:
 - Það, sem ég býð þér, það skaltu gera: Ger hugarfarsbreytingu, Appóllóníus.  Hylltu Kommodus keisara og mynd hans!
Appóllóníus svaraði hlæjandi:  Ég hef skýrt afstöðu mína til hugarfarsbreytinga og eiðstafa.  En hlýddu nú á mál mitt um fórnirnar.
 - Við framberum fyrir hinn almáttuga Guð óblóðuga og hreina fórn.  ... Í öðru lagi biðjum við, samkvæmt guðdómlegu boði, daglega til Guðs í himninum fyrir Kommodusi keisara, sem Hann – Guð – hefur skipað hér á jörðu.
Héraðsstjórinn:  Ég gef þér umhugsunarfrest, Appóllóníus.  Þú skalt íhuga kringumstæður þínar.  Líf þitt er undir því komið!
- - -
Meðan á frestinum stóð, lét Perennis færa sér fyrirskipanir öldungarráðsins.  Þar sagði svo fyrir, meðal annars:  Kristnir menn eiga ekki að vera til, það er að segja, ef þeir játa það, að þeir séu kristnir og neita að fórna guðum ríkisins.  Þá skal hegna þeim með lífláti.
- - -
Að þrem dögum liðnum gaf héraðsdómarinn fyrirskipun um, að Appóllóníus skyldi koma fyrir réttinn á ný.  Við þetta tækifæri voru margir ráðherrrar, öldungaráðsmenn, og lærðir menn viðstaddir.
Þegar Appóllóníus kom fyrir réttinn, bauð héraðsstjórinn, að lesið skyldi úr embættisbókinni, það sem laut að þessu máli.  Þegar því var lokið, ávarpaði dómarinn sakborninginn og sagði:
 - Að hvaða niðurstöðu hefur þú komizt, Appóllóníus?
Appóllóníus: Ég ætla mér að heiðra Guð framvegis.
Perennis: Í nafni ríkisráðsins ræð ég þér til þess að skipta um hugarfar og heiðra og dýrka guðina, sem við allir heiðrum og dýrkum, og lifa síðan meðal okkar áfram.
Appóllóníus: Ég veit hver úrskurður ríkisráðsins er, Perennis.  En ég vil ekki þjóna þeim guðum, sem gerðir eru af mannahöndum og geta ekki sér, heyrt eða hreyft sig, en Guði himinsins þjóna ég, Honum, sem gefur öllu líf.  Ég vanhelga mig ekki með því, að tilbiðja það sem stendur í jafnlægð manna eða lægra en þeir ...
Fleira þessu líkt sagði Appóllóníus um fánýti og hégómleika hjáguðanna, sem samtíð hans trúði á.  Héraðsdómarinn reiddist því þessarri djörfu ádeilu Appóllóníus og fór nú að nota hótanir:
Héraðsdómarinn: Appóllóníus, ákvörðun ríkisráðsin er þessi, að kristnir menn skuli ekki eiga neinn tilverurétt.
Appóllóníus: Ákvörðun Guðs fellur ekki til jarðar fyrir ákvörðunum manna.  Því fleiri, sem þið myrðið af kristnum mönnum, því meira fjölgar þeim.  Ég óska að þú megir vita það, Perennis, að keisurum, ráðherrum og valdhöfum, fátækum og ríkum, frjálsum og ófrjálsum, vitrum og óvísum hefur Guð ætlað eitt sinn að deyja, og eftir það er dómurinn. (Hebr. 9, 27).
En það er til tvenns konar dauði, hélt Appóllóníus áfram.  Þeir, sem lifa samkvæmt kenningu okkar, deyja daglega frá girndum sínum. – Þar eð við höfum slíka grundvallarkenningu, finnst okkur það síður en svo erfitt að deyja líkamlegum dauða, vegna hins sanna Guðs. –
Héraðsstjórinn:  Þar sem þú hefur komizt að þessari niðurstöðu, þá vilt þú gjarna deyja?
Appóllóníus: Gjarna vil ég lifa, Perennis.  Þó ekki af ótta við dauðann og elsku til hins tímanlega lífs.  Ekkert er jafnmikils virði og lífið, það er að segja eilífa lífið, því að það er ódauðlegt fyrir þann mann, sem lifir réttlátlega í þessu lífi.
 - - -
Perennis:  Ég hélt það, Appóllóníus, að þú mundir hverfa frá villu þinni, og að þú mundir heiðra guðina, eins og við hinir.
Appóllóníus:  Ég hélt fastlega, að réttlátar hugsanir fyndust hjá þér og andleg augu þín mundu ljúkast upp, er þú heyrðir, á hverju ég byggi málsvörn mína.
Hér:  Ég vildi óska, að ég gæti gefið þér líf, en úrskurður keisarans útilokar það.  En ég skal breyta mannúðlega við þig í dauðanum.
Hér lýkur réttarhöldunum.
Af því, sem Eusebíus segir um réttarhöldin yfir Appóllóníus, sést, að enda þótt hann væri útlendur maður, mildaði Perennis svo dauðadóm hans að hann var hálshöggvinn, eins og gert var við rómversk þegna, sem dauðadóm hlutu.
Píslarvætti Appóllóníus er eftirtektarvert að því leyti, að þar fær sá ákærði tækifæri til að gera fulla grein fyrir trú sinni.  Með háttvísi og djarfri framkomu leitaðist hann við að ná jafnt til dómaranna sem áheyrandanna yfirleitt með skírskotun sinni til staðreynda, sem þeim voru kunnar.  Síðan hefur hann gildi kristinar trúar upp yfir þetta allt og leiðir sannleikann með ljósum rökum fyrir augu þeirra.


Postullegar bænir = dynamískar bænir


Og núna kemur síðasti hluti postullegu bænanna (fann ekki fleiri - kannski þið?).  Ég er einmitt að klára nám sem ég er í svo þetta kemur slitrótt.  En einmitt með þessum bænum byggi ég upp væntingar mínar til Guðs, þessar dynamisku (kraftvirku) væntingar að Guð hjálpi mér að yfirvinna sjálfan mig, værukærð og leti og gefi mér af visku sinni og þolgæði og að ég fái sýn hans á þetta verkefni.  Ég tek á móti ALLRI Guðs fyllingu !!!  - núna! og þessvegna beygi ég kné mín fyrir föðurnum.

Efe 3.14-21
14. Þess vegna beygi ég kné mín fyrir föðurnum,
15. sem hvert faðerni fær nafn af á himni og jörðu.
16. Megi hann gefa yður af ríkdómi dýrðar sinnar að styrkjast fyrir anda sinn að krafti hið innra með yður,
17. til þess að Kristur megi fyrir trúna búa í hjörtum yðar og þér verða rótfestir og grundvallaðir í kærleika.
18. Þá fáið þér ásamt öllum heilögum skilið, hve kærleikur Krists er víður og langur, hár og djúpur, og komist að raun um hann,
19. sem gnæfir yfir alla þekkingu, og náið að fyllast allri Guðs fyllingu.

Kol 4.12
Einnig biður Epafras að heilsa yður, sem er einn úr yðar hópi. Hann er þjónn Krists Jesú og berst jafnan fyrir yður í bænum sínum, til þess að þér megið standa stöðugir, fullkomnir og fullvissir í öllu því, sem er vilji Guðs.

Hebr 13.18a+19
18. Biðjið fyrir oss!
19. Ég bið yður enn rækilegar um að gjöra þetta, til þess að þér fáið mig brátt aftur heimtan.


Postullegar bænir = nitroglyserinbænir

Kannski við nánari athugun líkjast þessar bænir sprengiefninu nitroglyserini.  Það felst í þeim sprengikraftur þeim sem trúir en ég hef þurft að beita þeim og (OG!!) ég hef líka þurft að ganga fram í trúarfullvissu þess að Jesús sé Drottinn.  Og að í HONUM búi öll fylling guðdómsins líkamlega.  Enda stefni ég á fullþroska og að ná vaxtartakmarki Krists fyllingar. 

1Tim 2.1-4
1. Fyrst af öllu áminni ég um að bera fram ákall, bænir, fyrirbænir og þakkargjörðir fyrir öllum mönnum,
2. fyrir konungum og öllum þeim, sem hátt eru settir, til þess að vér fáum lifað friðsamlegu og rólegu lífi í allri guðhræðslu og siðprýði.
3. Þetta er gott og þóknanlegt fyrir frelsara vorum Guði,
4. sem vill að allir menn verði hólpnir og komist til þekkingar á sannleikanum.
 

2Þess 3.1-2
1. Að endingu, bræður: Biðjið fyrir oss, að orð Drottins megi hafa framgang og vegsamast eins og hjá yður,
2. og að vér mættum frelsast frá spilltum og vondum mönnum.
 

Efe 6.18-20
18. Gjörið það með bæn og beiðni og biðjið á hverri tíð í anda. Verið því árvakrir og staðfastir í bæn fyrir öllum heilögum.
19. Biðjið fyrir mér, að mér verði gefin orð að mæla, þá er ég lýk upp munni mínum, til þess að ég kunngjöri með djörfung leyndardóm fagnaðarerindisins.
20. Þess boðberi er ég í fjötrum mínum. Biðjið, að ég geti flutt það með djörfung, eins og mér ber að tala.
 

Efe 3.13
13. Fyrir því bið ég, að þér látið eigi hugfallast út af þrengingum mínum yðar vegna. Þær eru yður
til vegsemdar.
 


Postullegar bænir = kjarnorkubænir

Og áfram heldur rannsóknin: bænir eins og þessar, sem eru kannski fyrir flestum lítið annað en blek á pappír, eru burðarvirki krafts heilags Anda og fylla trúaða mætti sem veitir kraft hinum þreytta og gnógan styrk hinum þróttlausa.  Þeir sem vona á Drottinn fá nýjan kraft, þeir fljúga upp á vængjum sem ernir.  Þeir hlaupa og lýjast ekki, þeir ganga og þreytast ekki.  Og það besta er, þessi vitnisburður er óhrekjanlegur !!

Efe 1.17-23
17. Ég bið Guð Drottins vors Jesú Krists, föður dýrðarinnar, að gefa yður anda speki og opinberunar, svo að þér fáið þekkt hann.
18. Ég bið hann að upplýsa sálarsjón yðar, svo að þér skiljið, hver sú von er, sem hann hefur kallað oss til, hver ríkdómur hans dýrlegu arfleifðar er, sem hann ætlar oss meðal hinna heilögu,
19. og hver hinn yfirgnæfandi máttur hans við oss, sem trúum.

Kol 4.2-4
Verið staðfastir í bæninni. Vakið og biðjið með þakkargjörð.
3. Biðjið jafnframt fyrir oss, að Guð opni oss dyr fyrir orðið og vér getum boðað leyndardóm Krists. Hans vegna er ég nú bundinn.
4. Biðjið, að ég megi birta hann eins og mér ber að tala.

Róm 15.13
13. Guð vonarinnar fylli yður öllum fögnuði og friði í trúnni, svo að þér séuð auðugir að voninni í krafti heilags anda.

2Þess 1.11-12
11. Þess vegna biðjum vér og alla tíma fyrir yður, að Guð vor álíti yður maklega köllunarinnar og fullkomni allt hið góða, sem þér viljið og vinnið í trú og með krafti Guðs,
12. svo að nafn Drottins vors Jesú verði dýrlegt í yður og þér í honum fyrir náð Guðs vors og Drottins Jesú Krists.

Fíle 4-6
4. Ég þakka Guði mínum ávallt, er ég minnist þín í bænum mínum
5. Því að ég heyri um trúna, sem þú hefur á Drottni Jesú, og um kærleika þinn til hinna heilögu.
6. Ég bið þess, að trú þín, sem þú átt með oss, verði mikilvirk í þekkingunni á öllu því góða, sem tilheyrir Kristi.


Postullegar bænir = laserbænir

Ég hef verið að liggja yfir Biblíunni og skoða bænir postulanna, hvílíkt ríkidæmi af mögnuðum bænakrafti er þar að finna.  Samanþjappað ljós (Jóh 1.5) er jú kallað laser, kannski réttnefni yfir þessi orð séu laserbænir.  Þær er að finna allstaðar í NT og ég læt nokkrar fljóta með þessu til áréttingar og útskýringar.  Textinn er fenginn uppúr þýðingu Biblíunnar 1981.

Kol 1.9-12
9. Frá þeim degi, er vér heyrðum þetta, höfum vér því ekki látið af að biðja fyrir yður. Vér biðjum þess, að þér mættuð fyllast þekkingu á vilja Guðs með allri speki og skilningi andans,
10. svo að þér hegðið yður eins og Drottni er samboðið, honum til þóknunar á allan hátt, og fáið borið ávöxt í öllu góðu verki og vaxið að þekkingu á Guði.
11. Mætti hann styrkja yður á allan hátt með dýrðarmætti sínum, svo að þér fyllist þolgæði í hvívetna og umburðarlyndi og getið með gleði þakkað föðurnum.

1Þess 3.10-13
10. Og vér biðjum nótt og dag, heitt og af hjarta, að fá að sjá yður og bæta úr því, sem trú yðar er áfátt.
11. Sjálfur Guð og faðir vor og Drottinn vor Jesús greiði veg vorn til yðar.
12. En Drottinn efli yður og auðgi að kærleika hvern til annars og til allra, eins og vér berum kærleika til yðar.
13. Þannig styrkir hann hjörtu yðar, svo að þér verðið óaðfinnanlegir og heilagir frammi fyrir Guði, föður vorum, við komu Drottins vors Jesú ásamt öllum hans heilögu.

Hebr 13.20-21
20. En Guð friðarins, er leiddi hinn mikla hirði sauðanna, Drottin vorn Jesú, upp frá dauðum með blóði eilífs sáttmála,
21. hann fullkomni yður í öllu góðu til að gjöra vilja hans og komi því til leiðar í oss, sem þóknanlegt er í hans augum, fyrir Jesú Krist. Honum sé dýrð um aldir alda. Amen.

Fil 1.9-11
9. Og þetta bið ég um, að elska yðar aukist enn þá meir og meir að þekkingu og allri dómgreind,
10. svo að þér getið metið þá hluti rétt, sem máli skipta, og séuð hreinir og ámælislausir til dags Krists,
11. auðugir að réttlætis ávexti þeim, er fæst fyrir Jesú Krist til dýrðar og lofs Guði.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband