A man´s gotta do what a man´s gotta do
30.4.2016 | 08:51
Flott hjá Jóni, ekki gefast upp :-)
![]() |
Blaðburður bjargaði íbúð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
hogginn???
25.4.2016 | 19:58
Prófarkalestur er mikilvægt fag og sú var tíð að prófarkalesarar við Moggann voru í miklum álitum og eftirsóttir. Þessi tíð er náttúrulega löngu liðin og sic gloria transit mundi og allt það. En BÍN kannaðist ekki við hogginn, þess í stað á líklega að standa höggvinn.
![]() |
Baráttumaður samkynhneigðra hogginn til bana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
kosningabarátta Bærings?
18.4.2016 | 20:49
Svona rjúka sumir frambjóðendur núna í gírinn.
Fyrirsagnirnar gæti hljóðað svona: Kók-kallinn hjólar í Óla.
![]() |
Ólafur er ekki maður orða sinna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heggur sá sem hlífa skyldi
17.4.2016 | 10:19
Það hlaut að koma að því að ég yrði sammála yfirmönnum Eimskipa. Gríðarleg skammsýni hjá Reykjavíkurborg að allir séu skornir niður við sama trog. Mér dettur í hug í þessu samhengi þegar Gídeonmönnum var vísað úr húsi fyrir að vilja gefa námsefni til trúarbragðafræðslu, Nýja Testamentið. Vegna þess að allskonar lífsskoðunarhópar flykktust að og vlldu fá að segja frá sinni lífssýn datt Reykjavíkurborg ekkert betra í hug en að banna allar heimsóknir. Reyndar voru innan ´Besta´ Flokksins einstaklingar í áhrifastöðum sem voru persónulega andvígir kristni og getur verið að það hafi litað ákvörðun Borgarstjórnar. Angi af þessari ákvörðun er núna að koma niður á hjólreiðaöryggi ungmenna.
@Sigrún Björnsdóttir (... í hvaða flokki situr hún annars?): Getum við ekki snúið við og farið að sjá þetta í ögn víðara samhengi???
![]() |
Ólafur Hand gagnrýnir Reykjavíkurborg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Loksins â¦
11.4.2016 | 07:40
Hér kemur framboð sem ég ætla að styðja. Var farinn að óttast að Össur og DO ætluðu að hrinda úr vör og þá fengi allt endalega á sig blæ ofurruglsins.
Mjög frambærilegur maður, menningarlegur bakgrunnur forseta af kalíberi Vigdísar, fræðimaður eins og Eldjárnið
og svo náttúrulega það sem fyrst kemur upp í hugann:
réttsýnn og alþýðlegur baráttumaður með tærnar á kafi í grasrótinni.
![]() |
Andri Snær staðfestir framboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármálafarsinn í nýjar lægðir
7.4.2016 | 17:01
Þetta minnir ögn á einhverskonar bíómynd eða lélegan tölvuleik: Einmitt þegar landið er í sem mestum sárum og svo virðist sem kjörnir fulltrúar þjóðarinnar hafi gert sig seka um skattsvik hægri/vinstri þá laumar Sjálfstæðisflokkurinn skyttunum þrem úr fangelsi þaðan sem þeir höfðu verið fyrir efnahagsbrot og fengu feykilega góða syndaaflausn, langstærstur hluti dómsins felldur niður, sátu ekki nema eitt ár af 4-5 árum.
Og Gleym-mér-ei fá Unnur Brá og Ólöf Nordal.
Ökklaband er fáránlegt fyrir hvítflibbaglæpamenn sem fremja sína stærstu glæpi við skrifborð og á tölvunni.
Skúbbið á Stundin sem fylgist með þótt aðrir sofi:
http://stundin.is/frett/kaupthingsmenn-leystir-ur-haldi-i-dag/
http://stundin.is/frett/ovenjulegur-isbiltur-fra-fangelsinu-kviabryggju/
![]() |
Lausir af Kvíabryggju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
BURTU MEÐ ÞIG!!!
4.4.2016 | 12:23
Æðsti embættismaður íslensku þjóðarinnar, í forsvari þeirra sem sóru drengskapareið að því að verja hagsmuni þjóðarinnar, fremstur í flokki þeirra sem bera hag Íslands sér fyrir brjósti.
Aumur varstu í gær - farðu burt í dag.
![]() |
Ekki íhugað að segja af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |