Kristna grúppan Jonas Brothers

Ég var að hlusta á athyglisverðan þátt í dag í útvarpinu (þessu allra landsmanna, munið þið?) þar sem Magnús R. Einarsson í þættinum Heimsauga fræddi þjóðina um kristnu hljómsveitina Jonas Brothers.  Raunar var umfjöllunin ekki minna um Russel nokkurn Brand sem lét Purity ring þeirra bræðra fara fyrir brjóstið á sér.  Þeir bera sumsé þennan hring hreinleikans sem tákn þess að þeir ætli ekki að hafa samfarir fyrir hjónaband.  Og til að gera Magnúsi enn meiri óleik dópa þeir hvorki né drekka.  Hann fussaði yfir því hvernig rokkið væri nú búið að missa hjartansblóðið, sex&drugs&rock&roll orðið útþynnt og slappt.  Engir drungalegir draumaprinsar, engir mjaðmahnykkir?

Þótt ég þekki þessa hljómsveit ekki neitt finnst mér mikið (MIKIÐ) til koma til þessarrar ákvörðunar og hefði svo sannarlega viljað hafa borið gæfu til að hafa haldið mér hreinum fyrir hjónaband.  Magnús sagði síðan (reyndar án þess að hafa skilið það til fulls að þeir væru mótsvar) að á sama tíma væru kynsjúkdómar unglinga að aukast, óléttur og ólöglegar fóstureyðingar og sú sálarkvöl sem því fylgir.

Fréttir berast stöðugt um nauðganir (samræði við stúlkur undir lögaldri) í partíum víðsvegar um landið.  Valið gæti orðið svo miklu einfaldara.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Agný

Það virðist enginn mega skera sig úr fjöldanum og síst af öllu ef það er eitthvað jákvætt...Held almennt að fólk verði hálf hrætt við þá sem eru eitthvað "öðruvísi"...Svo undarlegt sem það nú er..Kær kveðja.

Agný, 11.9.2008 kl. 16:39

2 Smámynd: Adda bloggar

Adda bloggar, 16.9.2008 kl. 22:00

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður.

Frábær pistill um Jonas Brothers. Þeir eru til fyrirmyndar. Fólk fær sko heldur betur að heyra það sem hefur tekið ákvarðanir eins og þeir. Fólk fyrirlítur svona hallærislegt lið en ég vona að fólk láti út um hitt viðbjóðslegar orðsendingar frá þessu liði og standi við sínar ákvarðanir. Allt væri svo miklu einfaldara ef fólk bæri virðingu fyrir sjálfum sér og líkama sínum. Ömurlegt þegar útvarp er notað til að breiða út hvatningu til að syndga.  Megi algóður Guð miskunna Magnúsi R. Einarssyni og gefa honum rétta sýn á lífið.

Guð veri með þér og þínum.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 21.9.2008 kl. 10:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband