Um skólamál
30.11.2016 | 07:47
Þetta er raunar mjög áhugaverð umræða um skólamál sem hér fer fram og ég er hissa að enginn bloggari taki sér lyklaborð í hönd og leyfi ljósi sínu að skína núna. Kannski það sé vegna ótta um að vera með hatursorðræðu. Erfitt þegar einn þjóðfélagshópur hefur vopn og dómskerfi á bak við sig og einbeittan notkunarvilja til að berja skoðanaandstæðinga sína inn í ´kassann´. Kom ekki hvað síst í ljós í ´Útvarp Saga´ dæminu.
En að skólamálunum þá þekki ég nokkuð til þeirra og fyrir mér snýst málið líka um rétt foreldra til að hafa áhrif á hvað barninu mínu er kennt. Ég hef nefninlega þann rétt til að vera sáttur og/eða ósáttur við hvaða þrýstihópar sjái verlferð sinni borgið með tjáningu við yngstu kynslóðirnar. The hand that rocks the cradle, rules the world. Því öll sjáum við í börnunum lykil framtíðarinnar. Eða lykil að þeirri framtíð sem við kjósum þeim (og okkur). Andstæðingar kristinnar trúar hafa farið mikinn gegn Gídeonmönnum og fengið þeim úthýst úr skólum á höfuðborgarsvæðinu. Einhverra hluta vegna hafa þeir sloppið við refsivönd hatursorðræðufólksins. Sleppi vangaveltum af hverju það er. En mér þykir skjóta skökku við þegar maður eins og Jón Valur bendir á sinn flöt í umræðunni, að hann sé bannaður.
Minnir mig á frægt dómsmál í Þýskalandi þar sem maður nokkur var ákærður fyrir að tala sig út um að Holocaust hefði ekki átt sér stað. Lögfræðingurinn sem maðurinn fékk úthlutaðan sem verjanda lenti í þeirri úlfaklemmu að þurfa að lesa upp í réttarsalnum ákæruatriðin. Nema að þarmeð féll hann undir sama dómsákvæðið og var handtekinn á staðnum. Úr þessu varð síðan mjög þörf umræða um frelsi tjáningar. Krúttkynslóðin sem orðið bannar alla heilbrigða umræðu snerti hún við fíngerðum taugum þeirra, getur varla fengið að stýra allri umræðu í skóli laganna. Eða er það?
Já, og kennarar: til hamingju með samninginn. Vonandi er hann nýtilegur.
Ekki verið með hatursorðræðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:28 | Facebook
Athugasemdir
Ég hef sagt íslensku bankana og samtök þeirra uppfylla skilgreiningu skipulagðrar glæpastarfsemi um árabil í ræðu og riti.
Hef ekki verður kærður fyrir neitt.
Lít á það sem staðfestingu á sannleiksgildi ummælanna.
Guðmundur Ásgeirsson, 30.11.2016 kl. 13:01
Verðum að bæta úr þessu kæruleysi í þinn garð.
Ragnar Kristján Gestsson, 30.11.2016 kl. 21:27
Það gæti reyndar orðið áhugavert ef á það myndi reyna fyrir dómstólum, ekki síst þegar kæmi að sönnunarfærslunni.
Guðmundur Ásgeirsson, 30.11.2016 kl. 21:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.