Lífsbjörg öðlingsstéttarinnar
30.12.2015 | 20:34
Já og enn og aftur getum við státað okkur af læknunum okkar sprenglærðu sem kunna að gefa út svo margar ólíkar tegundir af sýkla- og penicillinafbrigðum. Þeir hafa setið á skólabekk margir hverjir áratug og lært allt sem nöfnum tjáir að nefna um allar meinsemdir mannanna. Þeir ráða orðið öllu um líf og dauða og jafnvel þótt þeir berjist árangurslaust gegn vorgangsröðunarlistum á spítölunum þýðir ekki að fást um það, peningarnir eru jú einusinni öflugra hreyfiafl en eiðurinn hans Hippókratesar. Bullukolla hlýtur hún Sallý að vera að hnýta svona í þessa öðlingsstétt, ekki trúi ég þessu uppá blessað fólkið að efa sér ekki tíma í að skoða ástæður veikindanna okkar. Hvað var nú aftur ástæða lekanda fjöllyndi? Kannski þeir finni leið til að vinna ögn í því, kannski í samvinnu við Kára?
Lekandi gæti orðið ólæknandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Trúmál og siðferði | Facebook
Athugasemdir
Klárlega ætti fólk ekki að stunda slíkt fjöllyndi! það er það sem veldur þessu, fólk þarf að fara að ganga beinu og réttu brautina
hallur (IP-tala skráð) 31.12.2015 kl. 11:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.