*einkunnirnar
15.9.2015 | 07:41
einkunn, miskunn, forkunn, vorkunn ... hvaða fleiri orð voru það aftur sem beygjast eins... ?
Blaöamönnum sem ekki kunna að beygja íslensk orð ráðlegg ég að fletta uppá ´Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls´ hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Flest orð íslenskrar tungu og ef svo skyldi vilja að þið rækjust á orð sem ritstjórinn, Kristín Bjarnadóttir, hefur ekki enn sett inn, er hún mjög hjálpleg við slíkt. Muna núna að vista krækjuna: http://bin.arnastofnun.is/leit/?q=einkunn
Kastaði staurnum til sigurs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Trúmál og siðferði | Facebook
Athugasemdir
Sæll Ragnar.
Ætli þessi orð fylgi ekki sömu reglu:
Gunnþórunn, Iðunn, Ingunn, Jórunn,
Ljótunn, Steinunn, Sæunn, Þórunn?
Húsari. (IP-tala skráð) 15.9.2015 kl. 09:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.