Veitir Ísland stríðsbrölti USA brautargengi?
11.9.2015 | 07:44
Óttalegur heimóttarskapur er þetta sífellt í ykkur að upphefja USA sem bjargvætt yfirhöfuð einhvers. Þeir hafa farið með ofbeldi og ránum inn í hvert landið á fætur öðru við botn Miðjarðarhafs,stundum með Ísrael, stundum með NATO og skilja löndin eftir í rúst, eymd og volæði. Úraníumskot USA í Afganistan gerðu landið óhæft til byggðar og síðan kalla þeir sig ´friðar´gæsluliða? Þeir dældu vopnum og peningum í herskáa milizhópa í Sýrlandi á dögum Saddams sem síðan stigbreyttust í IS. Endilega horfið þið á aðrar sjónvarpsstöðvar en CNN eða Reuter. Mæli t.d. með Aljazeera eða t.d. RussiaToday annað veifið svo þið festist ekki alveg í pro-USA áróðrinum.
En vegna hans Houstons sem kíkir inn á öll kanablogg, því fer fjarri að ég hati bandaríkin og enn síður bandaríkjamenn. Hinsvegar set ég miklar efasemdir um að geopolitísk framganga USA í nágrannaríkjum Rússlands og fyrir botn Miðjarðarhafs þjóni heimsbyggðinni. Þjóni í raun engum öðrum en þeirra eigin hagsmunum.
Bandaríkjaher skoðar mannvirki á Keflavíkurflugvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Trúmál og siðferði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.