DUMP DIMON
22.8.2012 | 21:08
Bankastjórinn hjá JPMorgan Chase Bank (einn fjögurra stærstu banka USA), undir stjórn Jamie Dimon tapaði á síðasta ári 9 billjónum dollara. Bankinn er ríkistryggður eins og bankarnir á Íslandi. Á sama tíma á hann sæti í Seðlabanka New York fylkis. Hlutverk Seðlabankanna (the Feds) er að sjá fyrir öryggi, heilbrigði og lífvænleika hag- og fjármálakerfisins (e.foster the safety, soundness and vitality of our economic and financial systems) og vinnur innan Seðlabanka Bandaríkjanna (Federal Reserve System eða The Fed) sem er í einkaeigu.
Nema Bandaríkjamönnum þykir þessi hagsmunaárekstur hjá stjórnanda eins stærsta banka í heim vera ámælisverður: afhverju eigi eftirlitsaðilinn Dimon að hafa eftirlit með bankastjóranum sjálfum sér?
Aðgerðahópur sem nefnir sig Hin 98%-in heldur úti síðu þar sem þau safna undirskriftum til að þrýsta á Dimon til að segja af sér hjá Seðlabankanum. Hér er síðan: Dump Jamie Dimon
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 21:09 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.