Morgunblaðið og klámið
14.3.2011 | 10:24
Við fjölskyldan búum við ströndina og horfum gjarnan út á hafið, þekkjum vel styrk þess og afl, höfum sé brimið ganga yfir sjóvarnargarðinn og löðrið í sunnanáttinni baða mæni húsanna hérna í þorpinu. Við settumst því saman við mbl.is og horfðum dolfallin á afl og vald flóðbylgjunnar sem engu eirði í Japan á föstudaginn var. Það sem fór hinsvegar í taugarnar á mér voru þessar ófjölskylduvænu auglýsingar sem birtust alltaf í byrjun hverrar fréttar. Eftir að hafa horft á nokkrar þeirra var ég farinn að kalla skjámyndina niður á meðan þær hljómuðu. Samt náði elsti strákurinn minn að reka augun í eitthvað sem vakti forvitni hans: „Pabbi hvað er milf?“ Hann sló því inn hjá StartingPage og var kippt inn í viðbjóð klámheimsins við litla hrifningu okkar foreldranna. Okkar fyrstu viðbrögð voru að nota þetta tilefni til að herða síuna á leitarvélinni. Á sama tíma og leitarvélar bjóða flestar uppá leit sem útilokar klám (StartingPage, Google, Yahoo geta hindrað pornografískt efni af öllu tagi), hvernig má það vera að mbl.is beinlínis dæli yfir notendur netblaðsins auglýsingum sem innihalda klámtilvísanir?
Nú þykir mér fyrirtækið RING sem auglýsir með þessu móti, frekar ómerkilegt og dytti sjálfum aldrei í hug að hafa viðskipti við fyrirtæki sem stílar sér innihaldslaust inná "lifestile" og hip-og-kúl unglinga sjálfu sér til framdráttar. En öðru máli gegnir um Morgunblaðið: væri ekki hægt að halda þessum ófjölskylduvæna hluta ritstjórnarstefnunnar innan Monitors og leyfa okkur sem þætti ágætt að losna undan honum - að ... einmitt já, losna undan honum?
Ég sendi þetta sem bréf til ritstjórnar mbl og þegar/ef ég fæ svar pósta ég það hinað inn.
Meginflokkur: Trúmál og siðferði | Aukaflokkar: Fjölmiðlar, Mannréttindi, Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll Ragnar,
Þakka þér fyrir ábendinguna. Henni hefur verið komið á framfæri við auglýsingastjóra Árvakurs.
Með kveðju,
Soffía Haraldsdóttir – mbl.is
Ragnar Kristján Gestsson, 14.3.2011 kl. 10:51
Sæll Ágúst, ...(?)
Starfsmenn mbl framsendu póstinn á mig, þar sem ég er í forsvari fyrir vörumerkið Ring.
Ring hefur verið í miklu & góðu samstarfi við Monitor sem er í eigu mbl. Það samstarf felur í sér auglýsingar í tímaritinu Monitor og á undan samnefndum myndskeiðum á mbl. Til að byrja með vill ég biðjast afsökunar á að umrædd auglýsing hafi verið á myndbrotum frá Reuters fréttaveitunni. Ég er sammála þér að auglýsingar með tilvísun í gleði og grín eiga ekki við þegar fjallað er um alvarleg málefni eins og náttúruhamfarirnar í Japan. Hér er einfaldlega um mistök að ræða. Auglýsingar Ring eiga einungis að vera á undan Monitor myndskeiðum. Við munum skerpa á þessum hlutum og þakka ég þér kærlega fyrir að benda mér á þessa vankanta í birtingarplani okkar.
Hvað varðar efnistök auglýsingarinnar að þá er það ekki ásetningur okkar að særa blygðunarkennd fólks eða að vísa ungu fólki á ruslahauga veraldarvefsins eins hér hefur gerst og þykir mér það miður. Við tökum vitanlega allri gagnrýni vel þar sem við erum langt frá því að vera yfir það hafin að gera mistök og læra af þeim. Hinsvegar er það stefna okkar að vera óhrædd við að slá á létta strengi.
Í auglýsingum okkar búum við til ýktar og vandræðalegar uppákomur og gerum gys að þeim en notum einnig alvarlegan undirtón þegar það á við. Við byggjum oftar en ekki auglýsingar okkar á fréttum, bíómyndum eða umræðu í samfélaginu hverju sinni. Varðandi það sem þú nefnir þá er slegið á létta strengi og vísað í eina vinsælustu unglingamynd allra tíma "American Pie".
Skilaboðin sem við erum að senda hér, tel ég þó vera mjög mikilvæg. Við gerum okkur fulla grein fyrir mikilvægi þess að fólk stundi ábyrga netnotkun. Við teljum það einstaklega mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem fylgir því að deila efni, myndum, skoðunum eða pælingum á vefnum. Hér var því notast við gamanmál til að skerpa á skilaboðunum "Vertu viss um hvað þú ert að segja". Með því viljum við benda fólki á að hugsa sig tvisvar um áður en það deilir hverju sem er með umheiminum.
Vona ég að þetta gefi þér innsýn inn í raunverulegan ásetning okkar & þakka ég þér fyrir verðuga ábendingu.
Með virðingu
Einar Ben
Markaðssérfræðingur
GSM: 698 4030
Ragnar Kristján Gestsson, 19.3.2011 kl. 06:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.