Verri menntunaraðstaða?
23.4.2010 | 21:41
Nú halda atlögurnar að menntakerfinu áfram. Bandaríkjamenn eru í miklum vandamálum þar sem niðurskurður hefur verið á bilinu 5-10% eftir fylkjum. Þeir hafa mætt þessu með niðurskurð á skólaárinu, -vikunni og -deginum, stærri bekkjum og færri stuðningsfulltrúum, fyrir utan uppsagnir fjölda kennara. Auðvitað lendir þetta fyrst á öllum stundakennurum og lausráðnum (eins og í Hfj.) en þegar fram í sækir á öllu starfsfólki. Mest bitnar þetta þó á menntun í landinu og börnunum okkar.
Takið eftir þessari ömurlegu klisju að kalla alltof stóra bekki og yfirfulla skóla meiri möguleika á félagslegum samskiptum í fjölbreyttari nemendahópi. Ég óttast að þarna séum við ekki farin að bíta úr nálinni.
Hafnfirskir skólar sameinaðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Trúmál og siðferði | Facebook
Athugasemdir
Starfsfólki sem sagt er upp fer á bætur sem kosta hvort eð er ríkið peninga.Laun greidd til starfsfólks skólanna renna 99% inn í íslenska hagkerfið aftur.
Hörður Halldórsson, 23.4.2010 kl. 21:53
Og hver er þá sá sem tapar á þessu? Nemendur og menntun á landinu.
Ragnar Kristján Gestsson, 24.4.2010 kl. 07:27
Þetta er merkileg ákvörðun -
mér skilst að Hjallastefnan sem er alls góðs makleg eig að fá Engidalsskóla og aka eigi börnum þvert yfir Hafnarfjörð til þess að koma þeim ´sinn leikskóla.
Vonandi er þetta allt misskilningur hjá mér - það er útilokað að bæjarstjórnin taki slíka ákvörðun með tilheyrandi aukaakstri foreldra -
Ólafur Ingi Hrólfsson, 25.4.2010 kl. 06:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.