kaus áðan: X-NEI

Kaus áðan utankjörstaðar og skammast mín ekkert fyrir að segja ykkur hvað.  Ég setti X-ið mitt við NEI.  Og eins og Ólafur Elíasson Indefencemaður furða ég mig reyndar líka heilmikið á ummælum Gylfa ráðherra (!) sem virðist ekki hafa skilið hvað lýðveldið Ísland er merkilegur hlutur.  Og verðmætur.  Og þess virði að berjast fyrir.  Og ég hvet alla til að skoða það ofan í kjölinn hvort þessi samningur frá því í fyrra sé þess virði að púkka uppá hann.  Eins hvort ekki sé eins komið fyrir þessari ríkisstjórn.Shocking
mbl.is Atkvæðagreiðslan undirbúin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðaratkvæði í ljósi fullvissu

Að sjálfsögðu er staðan óljós en til þess kjósum vér.  Svo við rifjum upp þá atburðarrás sem kom okkur hingað:  Jóhanna og Steingrímur samþykktu fyrir sitt leiti að 5,5% vextirnir ofaná ICESLAVE skuldirnar væru viðsættanleg leið fyrir íslenska ríkið.  Því mótmælti þjóðin og forseti neitaði líka staðfestingu (hóf að reka af sér slyðruorðið).  Hvað gerist núna er óljóst EN þegar við stöndum saman sem þjóð þá getum við boðið hvaða þjóð sem er byrginn.  Ekki í nafni sjálfbyrgingsháttar heldur í nafni réttlætis.
mbl.is Þjóðaratkvæði í skugga óvissu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. mars 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband