Við kjósum: NEI
1.3.2010 | 19:32
Þetta er reyndar merkileg kosning enda mjög verðmæt niðurstaða sem fæst með þessu móti um sorglega stöðu ríkisstjórnarinnar sem hefur undangengna 15 mánuði vægast sagt haldið illa á spilunum og skriðið æ ofan í æ fyrir umsemjendum breta og hollendinga. Allir á kjörstað og kjósum NEI
![]() |
74% gegn Icesave-lögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
þvílík forréttindi
1.3.2010 | 19:02
Já, þvílík forréttindi að fá að halda á barnabarnabarnabarnabarninu sínu! Að fá að sjá til hvers maður hefur verið að þessu allan tímann. Að fá að sjá ávöxt andvökustunda yfir veiku barni og gráti í föðurfaðmi. Til hamingju

![]() |
Sex lifandi ættliðir þar sem flestir eru í karllegg er sennilega einsdæmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |