Staða íslenskrar myndlistar?

Að mörgu leiti skemmtilegt rými og sjálfsagt heilmikil white cube stemning þarna möguleg.  Hugrenningartengsl ögn neðanbeltisleg sem er kannski bara framhald af stöðu menningarinnar: útrás hins innétna.  Kannski hægt að bjóða t.d. belganum Wim Delvoye að ríða á vaðið þarna...
mbl.is Náðhúsi breytt í listagallerí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagsmunir Bandaríkjanna

„Obama sagði, að hver sá sem ógni hags­mun­um Banda­ríkj­anna ætti sér eng­an griðarstað.“

Er ekki kominn tími til að við ræðum ögn um hagsmuni Bandaríkjanna versus annarra landa?  Og hvað ef hagsmunir þeirra skarast við okkar?  Kannski ögn eins og hefur gerst núna tvívegis undanfarin 40 ár milli okkar og Breta.  Eigum við okkur þá engan griðastað?  Og hvað þýðir það praktískt?  NSA og drónar? Loftárásir?  Nato?

Vona svo sannarlega að þessi ummæli hafi aukist svona í Mbl-þýðingunni.


mbl.is Rússar aðvara Bandaríkjamenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breedlove => Breedwar

Legg til að Breedlove verði aldrei kallaður annaði í opinberri umræðu en Breedwar.  Og öll stríðsæsingaröflin fá nafnabreytingar í stíl. 
mbl.is Rússar ekki lengur samherjar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verndum frelsi Internetsins - www.battleforthenet.com


Ha, bara svoleiðis?

Er ég að skilja þetta rétt, að fá sér rafræn skilríki í farsímann sinn er skilyrði þess að lánin verði leiðrétt???
Þannig að ef þú ert ekki með farsíma færðu enga leiðréttingu þinna mála?
Ef þú ert með það gamlan síma að þú getur ekki notað rafrænu skilríkin - þá færðu enga leiðréttingu þinna mála?
Hvernig er það eiginlega, ráða bankarnir öllu hér?
mbl.is Rafræn skilríki í símanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barcelona og Selfoss

Í Barcelona er fólk komið upp í kok af allsberu fólki, kalla það óværu en á Selfossi sést svo lítið af því að það er fenginn kynlegur fræðingur úr Reykjavík til að sýna fermingarbörnum það sem spánverjar vilja losna við að sjá.  Eru við svona hispurslaus og ofboð frjálslynd, og spánverjarnir forpokaðir og gamaldags?  Eða hvað?
mbl.is Ekki fleiri drukkna og nakta ferðamenn takk fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ehemm - aðskilnaðarsinnar!

Svo alls réttlætis sé gætt og jafnt gangi yfir alla -  er ekki fordæmi fyrir því að kalla þá aðskilnaðarsinna sem vilja sjálfstæði sitt?  Sjálfstæðissinnar hefur yfir sér yfirbragð samþykkis og virðingar. Af hverju er fjallað svona ólíkt um þessi keimlíku mál?

Nú verða kosningar þann 18. sept um hvort Skotar eigi að vera hluti Bretlands áfram eða stofni sjálfstætt ríki.  Ætli þeir eigi von á viðlíka mótttökum og Krímskagarússar sem voru með svipaðar kröfur.  Sér í lagi ef þeir vildu vera utan ESB og jafnvel taka upp stjórnmálasamband við t.d. Kína.  Því mættu þeir allt eins eiga von á að breska heimsveldið sýni tennurnar. 


mbl.is Sjálfstæðissinnar sækja á í Skotlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband