Með hatri gegn hatri?

Hvenær helgar tilgangurinn meðalið?  Stundum eru mótmælendur verri en það sem er mótmælt.  Mér dettur t.d. líka í hug íhlutanir Bandaríkjanna (= NATO) gegn Assad í Sýrlandi eða gegn Ghaddafi í Lýbíu.  Hvort tveggja startaði flóttamannastraumunum í Evrópu sem aftur kallaði á vöxt hægri öfgahópa.  Dettur einhverjum í hug fleiri dæmi?


mbl.is Grjótkast við kosningafund Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðræðið og bólusetningarnar

Ég ef mikill fylgismaður þess að maður láti ekki segja sér hvað sem er án þess að skoða báðar hliðar málsins.  Finnst það í raun forsenda og bakbeinið í lýðræði að eiga þetta val.  Fyrir þá sem eru mér sammála læt ég því fylgja myndband um Dr. Suzanne Humphries, lækni sem kom og hélt fyrirlestur í Háskóla Íslands í fyrra.  Hinir kíkja bara á Smartland …


mbl.is Skikkaðir á námskeið um vísindi bólusetninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LOKSINS

Loksins kemur heiðarlegt og málefnanlegt viðtal við Ástþór sem hefur verið að benda á mörg góð og athyglsiverð málefni þau 11 ár síðan ég flutti aftur til Íslands.  Og heldur því áfram.  Hef verið honum sammála um margt, ekki síst í kringum forsetakosningar, hvernig fjölmiðlar hafa bókstaflega gert úr honum trúð fyrir það eitt að hnýta baggana sína öðrum  hnútum en margt samferðafólkið.  Óska honum alls hins besta.  Og takk mbl.is


mbl.is Leiði mannkynið úr styrjöldinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitísk aftaka blaðamanna

Það hefur verið merkilegt að fylgjast með þessu ferli öllu, hvernig Jóhannes Kr. í broddi meðvirkrar fylkingar slátraði Sigmundi Davíð og ýmsum öðrum. Án þess að ég telji mig vera sérfræðing í skattamálum gat ég aldrei betur séð en Wintris væri lítið annað en bankareikningur erlendis.  Vegna þess að Sigmundur átti peninga erlendis (sem hann hafði vel að merkja borgað skatta af á Íslandi) lagði Jóhannes dæmið upp sem hann væri glæpamaður sem sefjaður múgurinn krafði að yrði að deyja.  

Nú þegar búið er að fá svar við skattamálum Sigmundar í ljós kemur að stormurinn um hann reyndist vera pólitísk aftaka, verður spennandi að vita hver spunameistarinn er sem lagði dæmið upp fyrir Jóhannes.  Annars eru merkilega margir punktar í þessu dæmi öllu sem eru athygliverðir og fróðlegt verður að fá svar við þegar fram í sækir.

Hver er uppljóstrarinn sem þóttist hafa reynt að koma þessi til Wikileaks?   Hvað er til í því sem Juan Carlos Varela forseti Panama sagði: að Panamaskjölin væru baktjaldamakka stórveldanna?  Tengist það okkur og þá hvernig?  Hvernig stendur eiginlega á því að engir stórlaxar í t.d. Þýskalandi, USA, Frakklandi osfr.osfr.  Hvernig stóð á því að HÍ lenti ekki meira í umfjöllun en raun bar vitni?  Í lögfræðilegri útungurnarstöð HÍ kenndu þeir ætti að stofna aflandsfélög eins lektorinn í skattarétti Kristján Vald. sýndi.  Og Dorrit og Ólafur, er það ekki sami stormurinn í vatnsglasinu?


mbl.is Hátt í 400 milljónir í skatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband