Færsluflokkur: Sjónvarp

Í Kastljós með þetta

Í Kastljós með þetta, þeir tekst ábyggilega að grafa upp 18 mánaða gamlar myndir af einhverjum óþverra hjá Mountaineers of Iceland (MoI), kannski ófrágengna salernisaðstöðu eða götótta aðgerðaráætlun vegna gangsetningar.  Síðan að fýra þessu upp á “prime-time” og fá fyrirtækið á hnén.  Síðan er þá líka komið grind að sketzi fyrir einhverja vitleysinga í áramótaskaupi 2017.   Allir ánægðir - tja nema náttla MoI sem gerðu reyndar bigtime á sig en eiga sér nú aldrei viðreisnar von.


mbl.is „Eru þeir búnir að gleyma okkur?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klárlega engin minna dætra

Ótrúlegur frasi þetta
„… AÐ STYÐJA EKKI KYNSYSTUR SÍNAR.“
Síðan hvenær fór þetta að snúast um kynin en ekki málefni?  Eiga USA konur að styðja Hillary fyrir það eitt að hún sé kona?  Og horfa framhjá Goldman Sachs tengslunum hennar og spenasoginu á Wall Street.
Eitthvað held ég jafnréttið hafa lagst lágt þessa dagana.


Því mér finnst þetta gríðarlega flott útganga hjá Ágústu Evu (prinsipp manneskja sem lætur verkin tala) en jafnframt gríðarlega skammsýnt hjá Gísla (frekar slappur hægrisinnaður populisti - þessi sögulega sjálfsréttlæting sökkaði).
Bendi á að bloggið mitt hérna snýst ekki kynin heldur málefnin.

Viðurkenni samt (trauðla) hér í lokin að ég hef oft hlustað á Rvkdætur og finnst þær oft rappa þétt.  Hinsvegar er kynjafræðiblandaði öfgafeminsminn býsna afvegaleiddur.  Ögrun er að því leiti erfið list að hún klýfur í fylkingar frekar en sameinar.  En Rvkdætur virðast spenntari fyrir klofinu (á sér?) en sameingingu.  Og að hvaða marki stefnir sú list?

En þetta er náttla bara mín skoðun…


mbl.is Ekki þínar Dætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband