Kynningarátaksskýrslan?

Vel gert hjá Hveragerðisbæ enda mjög mikilvægt að einhver taki einarða afstöðu til þessa mikla hita- og álitamáls.  Veit einhver hvar hægt er að nálgast þessa skýrslu?  Gúglaði (eh.. https://startingpage.com - aði) upp erfðabreytt.net en fann í fljótu bragði ekkertum hana.

 


mbl.is Málið átti að kynna skilyrðislaust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yndisleg samvinna

Dásamlegt dæmi um það hvernig stjórnvöld geta átt í vinsamlegum og uppbyggilegum samskiptum við fjölmiðlana.  Eða með öðrum orðum hvernig fjölmiðlarnir starfa sem handbendi bankanna, hinna raunverulegu stjórnvalda á Íslandi.  Athyglisvert að lesa greinina með því augnamiði hvernig pressan ól á „raunverulegri" þjófhræðslu sem nýtist hverjum?  Auðmönnunum sem stýra bönkunum.

Legg til að menn skoði reglulega yfirhalninguna sem Lára Hanna sýnir af Bjartmari og Einari Má taka Ingva Hrafn á beinið.  Ingvi fær alla þá skömm í hattinn sem hver einasti fjölmiðill átti skilið fyrir einhliða og gagnrýnislausa fréttamennsku.  Þetta þarf að skoða sérstaklega vel núna þegar skilanefndirnar krefjast samúðar í ljósi þeirra vandræða sem bankarnir „lentu í."


mbl.is Búið að tæma sum útibú af seðlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eineltissamtökin Vantrú?

Hérna eru bara tekið fyrir eitt „viðfang“ þessara samtaka enda þótt vikið sé að fleirum.  Hvað fleira hafa Vantrúarmeðlimir plottað í skúmaskotum?  Eru þeir virkilega svona blindir af hatri að þeir eru ófærir um sjálfsgagnrýna skoðun?  Heitir þetta geðveiki að tala svona um Sigurbjörn biskup og t.d. um þá sem boða börnum kristna trú sem barnaníðinga? 
mbl.is Heilagt stríð Vantrúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Friðhelgi einkalífsins

Það er í raun alveg makalaust hve öll umræða á Íslandi er komin stutt á veg þegar um er að ræða þemu á borð við friðhelgi.  Hvergi í heiminum er Facebooknotkun eins almenn svo dæmi séu nefnd.  Hvergi þótti eins sjálfsagt að allir Íslendingar tækju höndum saman við að byggja gagnagrunn Íslenskrar Erfðagreiningar.  Hvergi þykir fólki eins sjálfsagt að alllir viti allt um alla.  Hvergi annarstaðar í heiminu (að mér vitandi) leggur fólk fram kennitöluna sína (social-security number) til að leigja sér mynddisk.

Hef stundum velt fyrir mér hvort þetta sé af sveitabragnum á öllu en hvar ég hef búið erlendis eru privacy issues mjög mikilvægar, fólk hugsar sig oft um áður en það setur nafnið sitt við einhverjar upplýsingar - einmitt af því að það er svo auðvelt að misnota þær.  Í Þýskalandi var Stasi og einhverju fyrr Gestapo, KGB, VSB, CIA, Mossad og hvað-þeir-nú-hétu-allir.  Og við ...?  Sérsveitina hans Björns Bjarna?

Kannski Birgitta hafi einmitt fengið nasasjón af því hvernig vilji stjórnvalda getur hneigst til rannsókna á einstaklingum og hvernig andvaraleysi þegnanna er þeim beinlínis hjálplegt.  Fyrst við fáum að fylgjast með þessari sakleysissviftingu ættum við að reyna að læra eitthvað í leiðinni.

Hvet alla til að skoða leitarvélar á borð við https://startingpage.com/
mbl.is Öruggast að senda sendibréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er dr. Saxi á Landsanum

Hvað í ósköpunum flokkast allt undir stungusár?  Gott og vel, sjúkraliðaneminn rekur kannski stundum nálina óvart á rangan stað en þetta leiðir hugann að Gerfahverfinu og Saxa lækni: Æ,æ, ég hef skorið (stungið?) of djúpt, hvað ætli yfirlæknir segi, ég hef stórskemmt skurðarborðið...
mbl.is Starfsfólk beitt ofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bleksull?

Þarna væru nú margir samferðamennirnir í vondum málum.  Oft ansi vanhugsaðar ákvarðanir sem liggja þarna að baki, gæti ég trúað.  Hér í eina tíð var eina fólkið sem hafði tattú drykkjusvolar sem höfðu hangið í Hull og Bremerhafen og líklega eimir eftir af þessari hugsun enn, tattúið þá svona icon um hversu frjálslyndur maður sé og „sigldur“.  Sennilega eina leiðin að losna við blekið er að fara í eyðingu til Laser-lækningar, erfiðara með gervifrjálslyndið.
mbl.is Neitað um starf vegna húðflúrs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skólastarf í kristna landinu Íslandi.

Mig langar að þakka Dögg Harðardóttur fyrir ágæta grein þann 21. sl. í Fréttablaðinu.  Þar fjallar hún um þær tillögur mannréttindaráðs að loka aðgengi trúarsamfélaga að skólum Reykjavíkurborgar.  Þetta er merkilegt mál þar sem mannréttindaráð ætlar að taka skref í átt frá stjórnarskrárbundnum rétti íslendinga og ýmsar blikur eru á lofti að samsteypuborgarstjórn Besta (?) flokksins og Samfylkingar ætli sér að fara þá leið.  Þessu vil ég mótmæla harðlega.  Ég fæ ekki með nokkru móti séð að það sé hlutverk mannréttindaráðs að gerilsneyða skólastarf á Íslandi.  Því fyrst mannréttindaráð vill stíga þetta fyrsta skref frá þeim sjálfsögðu mannréttindum að njóta uppfræðslu í trúarlegu starfi í landi þar sem þjóðkirkja er kristin, er mjög líklegt að í næstu skrefum verði höggvið í sama knérunn.

Það rísa upp með reglulegu millibili trúleysihópar sem láta hátt, tala digurbarkalega um hættuna sem Jesúbarnið skapar fyrir önnur börn og heimta að skólastarf sé aðlagað að kröfum þeirra. Fréttir af syndugu líferni kristinna einstaklinga hafa síðan því miður verið olía á eld þessara hópa.  En afbrot þeirra rýra á engan hátt þann fagnaðarboðskap sem Biblían færir okkur.

Því megum við ekki láta þetta yfir okkur ganga.  Verum óhrædd við að stíga fram og láta skoðanir okkar í ljós.  Látum ekki minnihlutahópunum eftir skoðanamyndandi umræðu heldur „berjumst“ fyrir börnunum okkar og skólunum þeirra.  Og leyfum þessum röddum að berast inn í skólana.  Látum skólastarf verða grundvöll fyrir skoðanaskipti um gæði hluta, hugsunar og skoðana og brýnum fyrir börnunum okkar gagnrýna hugsun.  Við viljum ekki ala upp kynslóðir sem vegna ofverndar og mötunar hafa hvorki getu til að hugsa sjálfstæða hugsun né taka sjálfstæða ákvörðun.  Ólíkt mannréttindaráði treysti ég íslensku börnum okkar til að taka upplýsta ákvörðun með foreldrum sínum hvort heldur þau vilja ganga í skátana, tilheyra kristinni kirkju eða stunda íþróttir.

Ég vil síðan líka hvetja kristið fólk til að láta nú loksins í sér heyra, látum ekki ræna okkur þeim áfangasigrum sem 1000 ára kristni í landinu hefur fært okkur.
(Greinin var send til Fréttablaðsins þann 23.6)

Þá er Google í vandræðum ...

Í raun merkilega þau ógrynni upplýsinga sem fyrirtæki safna um neysluhegðun og -mynstur þeirra sem notfæra sér þjónustu þeirra.  Og selja þau 3. aðila án þess að við fáum rönd við reist.  Google er náttúrulega þar fremst meðal jafningja enda þótt Facebook komi þar skammt á eftir.  Vísir (?) var með á dögunum grein um Assange þar sem hann kallar Facebook skelfilegustu njósnavél sem hafi verið búin til.  Hann hélt áfram og minnti á að þar sé að finna heimsins umfangsmesta safn af upplýsingum um einstaklinga, tengsl þeirra, nöfn, skoðanir og samskipti. Og bandarísk stjórnvöld hafi greiðan aðgang að þessu öllu.  Sama sagan sé að segja um Google og Yahoo.

Mæli með http://startingpage.com/ leitarvél sem EKKI skráir upplýsingar notenda sinna.

Mæli líka með að við skoðum neysluvenjur okkar og beinum viðskiptum okkar til aðila sem reyna ekki að stjórna okkur með þeim.


mbl.is Banna söfnun gagna um netnotendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttindi minnihlutahópsins barna

Þetta er nú svo illa prófarkalesið að erfitt er að fá skilning í þetta.
En mér virðist sem fólki lítist almennt vel á þessa hugmynd Orbans en vegna ótta og fordóma gagnvart sígaunum (Rómafólks) sé þjóðin klofin í afstöðu sinni.  Rétt skilið?
En hugmyndin finnst mér býsna athygliverð.  Og enda þótt ég viti svosem ekkert um fjölmiðlalög Orbans líkar mér vel við hugmyndir hans um hagsmuni framtíðakynslóða eins og þær birtast hérna.
mbl.is Mæður með ung börn fái aukaatkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumkunarverð fréttamennska mbl.is

Æi, hvað þetta er nú orðin aumkunarverð fréttamennska.  Þversniðið af erlendum fréttum er orðin eins og fréttamennskan hjá Binga á Pressunni eða á DV upp á sitt alversta:
Biskup og barnaníð, 14 ára í fangelsi fyrir lauslæti, skaut kærustuna, dönsk hjón drepin, brúðgumi beit brúði sína 27 sinnum (?!).
Er Mbl.is í keppni við Baggalút baggalutur.is eða >sannleikurinn.com< þar sem skemmtigildi er ofar fréttagildi?  Er Stefán Máni og Dr.E farnir að leita uppi fréttir fyrir moggann eða er þetta bara í þeirra anda?

mbl.is Brúðgumi réðst á brúði sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband