Ísland - Extra Large!

Ég ætla að beygja nokkur strik frá þeiri línu sem ég tók þegar ég byrjaði bloggið hérna, ég ætla að blogga um stjórnmál.  Ástæðan er sú að ég sendi þessa grein til mbl.is en varð að stytta hana svo hérna er hún í fullri lengd.

 

Nú þegar kosningar eru framundan og mesta lægð þjóðarinnar rétt að baki, er fróðlegt, jafnvel hjákátlegt, að virða fyrir sér hringiðu mála.  Búið að kasta burt þeim stórlöxum sem reyndust þegar á hólminn var komið, mest hugsa um sjálfa sig og sinn eigin hag.  Landsfeðurnir reyndust tala tungum tveim (þrem, fjórum, ...) og trompin sýndu sig vera sápukúlur.  Heil þjóð (eða allavega 90% hennar) fékk tröllatrú á kaupmætti sínum og menntunarstigi og æddi fram til að krefjast síns réttmæts hluta heimsins.  Kannski óþarfi að vera að tíunda þetta allt – í ljós kom að ríkidæmið var byggt á meira eða minna raunverulegum ímyndunum og allt gróðærið rann í vaskinn.  Og til að taka kaflaskiptin saman í eina setningu: síðan þá hefur tiltrú fólks á íslenskri stjórnsýslu og gjaldmiðli farið svo hrakandi að flestir vilja skipta hvoru tveggja út: taka upp erlent regluverk og erlenda mynt.  Má vera að sigraðri þjóð sé best að útþurrkast en hér vil ég biðja íslenskum vægðar því við erum sannarlega of góðir að deyja. 

Þessar kosningar sem fara í hönd snúast fyrst og fremst um eitt: hvort við göngum í ESB eða ekki.  Hvaða leiða við leitum til að komast uppúr þeirri efnahagslægð sem við erum í.  Í því gamla kvæði, sem kallað er orðstír okkar, er talað um hömluleysi okkar og græðgi og vera má að einmitt þar liggi orsök þessa hruns landsins.  Þessu komumst við ekki hjá að skoða, að þar standi hnífurinn í krónunni, þar sé vandans að leita.  Að þetta sé hin raunverulega ástæða veiks gjaldmiðils, neikvæðs vöruhalla, erlendrar skuldasöfnunar og verðbólgu.  Eina ástæða þess að ég er með þennan vísi að sálgæslu þjóðar, er að þetta mun ekki breytast neitt við inngöngu í ESB.  Á dögunum ræddi ég við ættingja minn sem sagðist ekki lengur hafa neina tiltrú á íslenskum til að stýra framhjá klíkumyndunum og innétnum ættartengslum, hann hefði gefist upp og nú skyldum við þó þurfa að lúta erlendri stjórn fyrst við hefðum misnotað svona svívirðilega tækifærin okkar.  Menntunin okkar væri þó allavega nothæf til að afla okkur tækifæra erlendis fyrst þau innlendu væri dáin.

Ég vil að við horfum frá þessum hugsunarhætti og horfum fram á veginn.  Ég vil að við tökum höndum saman og sýnum okkur sjálfum og hvert öðru að til sé leiðir þó illa hafi gengið.  Ég vil að við séum menn (og konur) til að horfast í augu við vandamálin og leitum síðan nýrra leiða.  Því ef við leggjumst á bakið og bíðum eftir því að erlendir kastalaherrar bjargi okkur frá því að missa spón úr askinum okkar hver er þá orðinn hlutur þeirrar þjóðar sem skrifaði frægar bækur og kallaði sjálfa sig sjálfstæða?  Við myndum þá í hæsta lagi verða feitir þjónar erlends leppríkis. Feitur þjónn er ekki mikill maður.

En við skulum leita nýrra leiða og sníða okkur stakk eftir vexti.  Við þurfum einmitt að horfa fram á veginn og sníða okkur stakk eftir þeim vexti sem við viljum öðlast, á flíkum okkar framtíðar stendur einmitt X-L, það sem Ísland þarf.  Þar á frelsið heima.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Góður pistill hjá þér Ragnar! ég er algjörlega sammála þér!

Guðrún Sæmundsdóttir, 30.3.2009 kl. 14:05

2 Smámynd: Baldur Hermannsson

Það er margt gott í þessum pistli, en maður hlýtur þó að spyrja sig: hvers vegna styðja þeir ekki bara Sjálfstæðisflokkinn?

Baldur Hermannsson, 30.3.2009 kl. 17:29

3 Smámynd: Ragnar Kristján Gestsson

Þakka þér Guðrún.

Þótt ég hafi lítið við Jón Baldvin að sælda pólitískt, ætla ég að svara þér Baldur með orðum hans sem ég rakst á í Mbl 18.3 af tilviljun þegar ég trítlaði með blöðin í pappírsgáminn:

"Hvernig má það vera að flokkur sem getur ekki einu sinni veitt sjálfum sér forystu, geri kröfu til að leiða þjóðina út úr þeim ógöngum sem þessi sami flokkur kom þjóðinni í?"

Gott og vel, síðan þetta var skrifa er Bjarni Engeyingur tekinn við forystunni en hann er tabula rasa, óskrifað blað svo ég læt orð fyrrverandi skólastjórans (med mere) gilda.

Ragnar Kristján Gestsson, 1.4.2009 kl. 09:28

4 Smámynd: Baldur Hermannsson

Jón Baldvin hefur örugglega verið að hnjóða í Samfylkinguna. Þar eru eilíf forystuvandamál, illindi og erjur. Sjálfstæðisflokknum er stýrt af styrkri hendi.

Baldur Hermannsson, 1.4.2009 kl. 10:06

5 Smámynd: Ragnar Kristján Gestsson

Þótt ég dáist að hollustunni gagnvart þinni flokksforustu verð ég að hryggja þig með að það voru vissulega Sjálfstæðismenn sem JBH hnýtti í.  Og alls ekki að ástæðulausu.  Að öðru leiti afleit grein sem fjallar mest um ESB ruglið í höfnundi.  Heitir "Næsta afsökunarbeiðni?" og er að finna í kálfi miðvikudagsblaðsins, 18. mars.

Ragnar Kristján Gestsson, 1.4.2009 kl. 11:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband