Ónýti húsnæðismála
6.3.2018 | 08:25
Við hjónin bjuggum tímabundið í Þýskalandi uns við fluttum til Íslands 2005. Skömmu áður en við tókum ákvörðun um flutninginn, vorum við komin á fremsta hlunn með að kaupa okkur hús í sunnanverðri Hamburg, vorum komin með lánsloforð og allt það. Nema að við sáum fram á að lækka hjá okkur leiguna og ná samt að ljúka afborgunum af 100þ eign á 10 árum. Ég hafði fasta (láglauna)vinnu en greiddi samt ekki nema 1/5 af tekjum mínum í leigu.
En í staðinn fluttum við til Íslands, keyptum á nánast sama verði og í Hamburg. Nema hér höfum við borgað skilvíslega í tæp 13 ár, eigum ekkert í húsinu okkar og það sem við áttum hafa lánastofnanir hirt. Hér fer 1/3 í afborganir af húsinu. Hún er dýr heimþráin.
Svona til gamans (?) og samanburðar eru hérna 3 þýskar lánastofnanir sem bjóða uppá fasteignalán
Hamburgar Sparkasse - Haspa - með 1,04% - 1,83% vöxtum eftir lánstíma
Og til enn meira gamans og samanburðar borga ég núna af skuldabréfum hjá ÍLS uppá 5,1% og þegar stjórnvöld grípa inní þessa sjálftöku, bjóða þau mér af gjafmildi sinni að nota séreignasparnaðinn minn til að moka í hýtina. Og eru þeir hjá Íbúðalánasjóði að átta sig á þessu? Ojæja.
Íslensk heimili skulda mun meira | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |