Eintómir framsóknarmenn

Í kjölfar könnunar var því haldið fram nýverið að það væru einkum framsóknarmenn sem væru búnir að fá sig fullsadda af ferðamönnum á Íslandi.

Annað tveggja eru því framsóknarmenn (eða lagsmenn þeirra í pólitík) svona víða, nú eða að vandinn er víðtækari.  Hér eru bankar seint og síðarmeir farnir að draga hælana með lánaveitingar til hótelbygginga og eins sjá bílaleigur fram á að skuldadagar nálgast hraðar en óskandi væri. "Offjárfestingar" var held ég orðið og það mitt í bullandi uppganginum.


Bloggfærslur 10. ágúst 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband