Í stæði eða sæti ...

Vil gauka nokkrum ágætum hugmyndum að eigendum Isavia svo þeir sjái nú fram á enn bjartari daga en orðið er. Leitt að vita til þess að þeir séu svo aðþrengdir að þeir sjá sig tilknúna til að hækka gjöldin fyrir aðkomu - og brottfararfarþegana.
En mér datt í hug hvort ekki væri snjallræði að krefjast stöðugjalds enda stendur fólk þarna í biðröðum endalaust, sjálfum sér og öðrum til ama. Að ógleymdu sliti á gólfefnum. Síðan mætti rukka þá um hærra gjald sem eru svo bíræfnir að krefjast sætis. Jafnvel tvískiptingu sætisgjaldsins, ögn lægra fyrir þá sem sitja á gólfinu, þó ekki mikið.
En í alvöru… nú hef ég farið á marga flugvelli í mörgum löndum, jafnvel farið með rútu eða opinberum samgöngum á allnokkra. Aldrei, aldrei hef ég þurft að borga eins rosamikið bara fyrir það að komast á völlinn og á Íslandi.  Sem mun efalaust hækka við aukinn kostnað rútufyrirtækjanna.  Og bílastæðin á KEF eru það dýr að kannski sveitafélög á Reykjanesi gætu boðið uppá vöktuð bílastæði og strætóferðir á völlinn. Væri fróðlegt að skoða hvaða bílastæði séu dýrust miðað við aðstöðu.  


mbl.is Rukka fyrir stæði hópbíla við Leifsstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. desember 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband