snjallsímafíkn

Nú hlýtur einfaldlega greinin í Morgunblaðinu að hafa verið ítarlegri og betri en þessi takmarkaði stúfur sem mbl.is birtir.  En maður veit aldrei.

En fyrir þá sem vilja auka skilning sinn á þessu vandamáli þá er hérna (líklega) greinin sem einhver þýðandi snaraði úr fréttaskeyti frá fréttaveitunni AFP (eru þýðendur á lægri launum en blaðamenn?).  Ég fæ raunar ekki séð að Scientific Reports sé tímarit heldur gagnagrunnurinn nature.com  Hvað um það.  En síðan fylgja hérna 4 aðrar greinar úr sama grunni og greinarnar frá nature.com

Daily touchscreen use in infants and toddlers is associated with reduced sleep and delayed sleep onset
https://www.nature.com/articles/srep46104

Analysis of circadian properties and healthy levels of blue light from smartphones at night Áhugaverð grein seem fjallar um neikvæð áhrif á svefn í kjölfar lækkunar melantóníns af vegna ljóssins af sjallsímaskjám
https://www.nature.com/articles/srep11325

To use or not to use? Compulsive behavior and its role in smartphone addiction  Áráttuhegðun og hlutverk hennar í snjallsímafíkn.
http://www.nature.com/tp/journal/v7/n2/full/tp20171a.html



Og síðan til áherslu, tvær greinar sem fjalla um vanda í kjölfar svefntruflana
Narcolepsy
https://www.nature.com/articles/nrdp2016100

Association between sleep duration and overweight: the importance of parenting  Grein um tengsl milli svefns offitu: mikilvægi uppeldis.
http://www.nature.com/ijo/journal/v36/n10/full/ijo2012119a.html


mbl.is Snjallsímabörn sofa minna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varúð - innköllun á kaupsýslumanni

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vekur athygli á innköllun á fyrrverandi forstjóra Samskipa, fjárglæfra … eh kaupsýslumanninum Ólafi Ólafssyni vegna afbrotahættu. Forstjórinn fyrrverandi hefur leikið lausum hala frá liðinni öld. Lagt er til að hann verið innkallaður. Greint er frá þessu á vef Alþingis.

Í tilkynningu frá nefndinni kemur fram að ástæða innköllunarinnar er sú að fjármunir bankanna og þar með íbúa landsins geta horfið í vasa hans og þar með valdið skaða á eiginfjárstöðu landsmanna.

Neytendur ættu þegar í stað að fjarlægja öll tengsl við þennan innkallaða einstakling og hafa samband við nefndina til að athuga möguleika á varanlegri innköllun hins gallaða manns.


mbl.is Ólafur Ólafsson óskar eftir fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband