Varúð - innköllun á kaupsýslumanni

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vekur athygli á innköllun á fyrrverandi forstjóra Samskipa, fjárglæfra … eh kaupsýslumanninum Ólafi Ólafssyni vegna afbrotahættu. Forstjórinn fyrrverandi hefur leikið lausum hala frá liðinni öld. Lagt er til að hann verið innkallaður. Greint er frá þessu á vef Alþingis.

Í tilkynningu frá nefndinni kemur fram að ástæða innköllunarinnar er sú að fjármunir bankanna og þar með íbúa landsins geta horfið í vasa hans og þar með valdið skaða á eiginfjárstöðu landsmanna.

Neytendur ættu þegar í stað að fjarlægja öll tengsl við þennan innkallaða einstakling og hafa samband við nefndina til að athuga möguleika á varanlegri innköllun hins gallaða manns.


mbl.is Ólafur Ólafsson óskar eftir fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband