Hver gæti Íslandspóstur þá stefnt?

Hvert er þá hlutverk Íslandspósts?
Mörg ríki Bandaríkjanna hafa séð í póstútibúunum ákv. bankahlutverk: postbank.  Banki sem sinnir grunnþjónustu og hefur önnur markmið en stóru bankastofnanirnar.  Venjuleg bankaviðskipti og hugsanleg neyslulán færðust þá hugsanlega yfir á póstbankann en bankarnir gætu sinnt sínum afleiðuviðskiptum og áhættustýrðu aflandsviðskiptum í friði fyrir okkur sem kjósum að leggja ekki nafn okkar við slíkar stofnanir.  Bankinn gæti haft hugmyndir Sparibankans hans Ingólfs til hliðsjónar: „það er ekkert lögmál að tekjur banka renni til eigendanna.  Þær gætu allt eins runnið til viðskiptavinanna.“ Ég myndi leggja fjármagn í stofnun slíkrar stofnunar og flytja viðskipti mín þangað - umsvifalaust.


mbl.is Póstrekstur ekki hlutverk ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband