Fílabeinsturn Össurar

Alveg er það með endemum hve maðurinn er fjarri öllum (ÖLLUM) þeim raunveruleika sem við hin á landinu lifum í.  Þessi grein er full af draumvillu hjá blessuðum manninum. 

-að umsóknin um ESB sé óháð Iceslave er ekki rétt.  Þeir eru búnir að segja það allir helstu ráðamenn Englands og núna síðast forsætisráðherra Hollands að frumskilyrði þess að rennt væri glyrnu að þessari umsókn væri að Iceslave væri umsamið og úr sögunni sem þrætuepli.

-að stuðningurinn við aðild sé til staðar en Iceslave skyggi þar eilítið á.  Þvílík endemis þvæla.  Ísland vill EKKI aðild að ESB - það þarf engin séní til að lesa það útúr níðurstöðum nýafstaðinna kosninga.

-er ég að gleyma einhverju?

Þjóðin er heldur ekki búin að gleyma „skjaldborg heimilanna“ svokölluðu, stuðninginn við launahæsta fólk þjóðfélagsins og gengistrygginguna.  Nú skulum við berjast uns þessi umsókn er dregin til baka!


mbl.is „Heilladagur fyrir Ísland“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Svar við síðustu málsgrein; gott að vita að það er baráttuhugur í ykkur ungu menn. Þið sjáið hvað þessi mannskapur ,(óstjórnin) vill  gera börnum okkar,hneppa í fjötra í eigin landi,þar sem hingað til hefur ríkt frelsi.

Helga Kristjánsdóttir, 17.6.2010 kl. 22:21

2 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Það held ég að Silvio Berslusconi  sé glaður í dag. Ítalir eru gríðarlega valdamiklir innan ESB og "njóta" leiðsagnar mafíuleiðtogans Berlusconi .

Fjöldi þingmanna í ESB fer eftir fólksfjölda aðildarlandanna, Finnar Svíar og Danir með sínar ca. 20 milljónir íbúa hafa ekkert að gera í ítala með um 60 milljónir manns. Svo að verði framtíðarsýn Össurar og Jóhönnu að veruleika skulum við búa okkur undir valdatafl alvöru mafíósa sem láta Björgólfa og Baugsfeðga blikna í samanburði. You ain´t seen nothing yet

Guðrún Sæmundsdóttir, 18.6.2010 kl. 01:02

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Við verðum að berjast fyrir lýðræðinu Össur bað okkur um það með þessu útspili sínu!

Sigurður Haraldsson, 18.6.2010 kl. 03:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband